fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Fréttir

Hundur braust inn á heimili og drap fimm mánaða stúlku

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 14. maí 2026 20:00

Villihundar eru mikið vandamál í Indlandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Villihundur komst inn á heimili í Indlandi og drap fimm mánaða gamla stúlku sem svaf þar í vöggu. Móðirin var að sinna heimilisstörfum og hafði skilið hurðina eftir opna.

Hið hræðilega slys átti sér stað á laugardag, 9. maí, í bænum Kamataka Bidar, norðvestur af borginni Hyderabad í suðurhluta Indlands. Hin fimm mánaða gamla Shivani, dóttir foreldranna Siddappa og Sudha lést eftir hundsárás eins og segir í dagblaðinu The Hindu.

Móðirin var að sinna heimilisstörfum og hafði útidyrahurðina opna. Þá laumaðist villihundur inn og réðist á varnarlaust barnið sem svaf í vöggu sinni.

Shivani litla vaknaði og öskraði þegar hundurinn beit í hana og kom móðirin hlaupandi að. En það var um seint. Hundurinn hafði bitið hana margsinnis.

„Þegar ég náði að hrekja hundinn í burtu hafði barnið hlotið alvarleg áverka á höfði, andliti og annars staðar á líkamanum,“ sagði hún við The Hindu.

Shivani var flutt á spítalann BRIMS í Bidar en lést þar af sárum sínum skömmu seinna.

Íbúar í bænum hafa lengi kvartað undan villihundum. Ferðast þeir oft saman í hópum og yfirvöld gera lítið í málinu. Eftir þetta slys hafa íbúar krafist þess að yfirvöld geri eitthvað í málinu og verji fólk frá þessum hundum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt