

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Stjörnugrís sendi frá sér og mbl.is vitnar meðal annars til. Afleiðingar innbrotsins voru alvarlegar því tíu smágrísir drápust í ringulreiðinni og þurfti að aflífa einn grís vegna kjálkabrots.
Þá segir í yfirlýsingunni að fjölmargar gyltur séu með áverka, þær haltar og rispaðar meðal annars, og þá hafi eitt fósturlát orðið. Búast megi við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, mjólkurmissis hjá gyltum og mögulega fleiri fósturláta.
Í yfirlýsingunni kemur fram að innréttingar hafi verið rifnar upp, stíur opnaðar og dyr skildar eftir opnar með þeim afleiðingum að dýrin gengu laus um húsin og úti á túni.
Málið hefur verið kært til lögreglu og er það nú til rannsóknar. Í yfirlýsingunni er haft eftir Geir Gunnari Geirssyni, forstjóra Stjörnugríss, að skelfileg sjón hafi mætt starfsfólki þegar það kom til vinnu um morguninn.
„Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi og í óreiðunni höfðu þau slasað bæði sig sjálf og hvert annað. Sérstaklega þungbært var að finna dauða grísi eftir nóttina.“
Geir hvetur þá sem stóðu að þessum verknaði ti að gefa sig fram við lögreglu og axla ábyrgð á gjörðum sínum.
„Við skiljum vel að fólk hafi áhuga á og áhyggjur af dýravelferð og það er af hinu góða að velferð dýra sé í hávegum höfð í samfélaginu. Það er eitt að mótmæla eða hafa skoðanir á búrekstri, en allt annað að valda dýrum þjáningu, meiðslum og dauða, raska ró þeirra og eyðileggja umhverfi þeirra í nafni málstaðar síns.“