
Í dag, þriðjudaginn 12. maí, verður fyrirtaka í máli Heiðveigar Maríu Einarsdóttur gegn Húnabyggð, við Héraðsdóm Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
Um er að ræða vinnulaunamál. Í lok janúar árið 2015 tilkynnti Atvinnu- og menningarnefnd Húnabyggðar um ráðningu Heiðveigar í starf verkefnastjóra hjá sveitarfélaginu og sagði að hún myndi halda utan um flesta viðburði Húnabyggðar „þetta árið“ (þ.e. 2025).
Hvorki Heiðveig né lögmaður hennar, Ingvar Smári Birgisson, hafa viljað tjá sig um málið við DV og hafa ekki veitt aðgang að stefnu málsins.
Heiðveig var mikið í fréttunum á árunum 2018-2019 vegna deilu við forystu Sjómannasambands Íslands. Hún hugðist bjóða sig fram til embættis formanns félagins árið 2018 og gagnrýndi þá forystu sambandsins. Trúnaðarmannaráð félagsins taldi hana hafa unnið gegn hagsmunum félagsins með gagnrýni sinni á stjórn þess og starfsmenn og vék henni úr félaginu. Félagsdómur dæmdi þessa ákvörðun trúnaðarmannaráðsins ólöglega og dæmdi Sjómannafélagið til að greiða eina og hálfa milljón króna í sekt og 759 þúsund krónur í málskostnað.