

Sverrir Helgason, sem sagði sig úr stjórn ungliðahreyfingar Miðflokksins í kjölfar umfjöllunar um rasísk ummæli hans í október síðastliðnum, er snúinn aftur og hélt ræðu á fundi ungra Miðflokksmanna.
Vísir greindi fyrst frá.
Mál Sverris voru mikið til umfjöllunar síðastliðið vor. En hann hefur látið hafa eftir sér að genamengi skipti máli við uppbyggingu samfélaga og sagði það ekki trufla hann að vera kallaður rasisti. „Það myndi ekki trufla mig þó ég væri kallaður það… Ekki neitt,“ var haft eftir Sverri í hlaðvarpinu Bjórkastinu. Sjálfur hefur Sverrir lýst sér sem „race-realist“.
Sverrir hefur einnig talað fyrir stórtækum brottflutningi fólks frá Miðausturlöndum og þá hefur hann kallað regnbogafánann „alnæmisfánann.“
Einnig hefur Sverrir látið miður falleg ummæli um femínista falla. „Þetta eru allt aktívista hórur,“ er á meðal ummæla sem hafa verið höfð eftir honum.
Samkvæmt frétt Vísis fjallaði Sverrir meðal annars um málefni hinsegin fólks í ræðunni og mikilvægi þess að Miðflokkurinn „gæfi ekkert eftir“ í þeim efnum. Sagði hann að landið væri „fokkt“ ef Miðflokkurinn næði ekki áhrifum.
En meðal þeirra sem hafa beitt sér gegn regnbogafánanum að undanförnu eru Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, og Einar Jóhannes Guðnason, oddviti flokksins í Kópavogi.
Fögnuðu ungir Miðflokksmenn vel og lengi eftir ræðu Sverris að sögn Vísis. Hins vegar vildi hvorki Sverrir né Anton Sveinn McKee, formaður ungliðahreyfingarinnar, tjá sig um málið.
Anton hefur áður sagt, í viðtali í nóvember síðastliðnum, að Sverrir tali ekki fyrir unga Miðflokksmenn.
„Sverrir vill náttúrulega bara breyta samfélagsumræðunni á Íslandi og ég ætla ekki að fara inn í einhver sérstök orð sem hann lét falla og orðin hans eru bara á hans eigin ábyrgð. Hver og einn maður ber ábyrgð á sínum orðum,“ sagði Anton í hlaðvarpsþættinum Sláin inn. „Auðvitað tökum við öllum sem vilja byggja upp sterka ungliðahreyfingu en það náttúrulega fylgir allt öðruvísi ábyrgð þegar þú ferð inn í stjórnina. Og það auðvitað sýnir sig í því að maður getur ekki bara tjáð sig á hvaða máta sem er og það var náttúrulega einmitt enda niðurstaðan að hann myndi fara út.“