fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Naut „stjaksetti“ einn frægasta nautabana Spánar á endaþarminum – Getur ekki sofið eða borðað

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 16:30

Áááááááááiiiiiiiii. Skjáskot/Youtube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morante de la Puebla, einn frægasti nautabani Spánar, var „stjaksettur“ af nauti sem rak horn upp í endaþarm hans. De la Puebla getur vart sofið eða borðað fyrir kvölum eftir árásina.

„Ég fann fyrir ótrúlegum sársauka, ég var hræddur af því að ég sá að nautið greip mig og ég hélt að mér væri að blæða,“ sagði de la Puebla í myndbandsfærslu á Instagram. Þá var hann í sjúkrarúmi eins og sagt er frá í frétt bandaríska blaðsins New York Post um málið.

De la Puebla er 46 ára gamall, títt nefndur „Konungur nautabananna.“ Frá fimm ára aldri hefur hann haft ástríðu fyrir íþróttinni en steig fyrst í hringinn árið 1988.

Nautabaninn var að keppa í heimaborg sinni Sevilla þegar þetta gerðist. Hann hafði þegar vegið þrjú naut í hringnum en það fjórða reyndist honum erfitt.

Nautið stökk að de la Puebla sem þurfti að sleppa skikkjunni sinni. Hann hljóp í burtu með bakið í dýrið sem setti hornin í hann og lyfti. Annað hornið fór upp í endaþarminn á honum.

Skurðaðgerð og sterk verkjalyf

„Þegar ég var kominn á bráðamóttökuna sá ég að blæðingin var ekki eins mikil og ég hélt. Ég gat slakað aðeins á en vitaskuld var þetta mjög sársaukafullt,“ sagði de la Puebla. „Án nokkurs vafa sársaukafyllsta stunga sem ég hef fengið.“

Nautabaninn fékk 10 sentimetra skurð á þarminn í þessum niðurlægjandi ósigri. Þurfti hann að fara í flókna skurðaðgerð til þess að láta laga endaþarminn og endaþarmsvegginn.

Segir de la Puebla að hann geti lítið sofið og hafi enga matarlyst vegna kvala. Fær hann næringu í æð og er á sterkum verkjalyfjum. Búist er við því að hann verði lengi að jafna sig að fullu af þessu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur

Fótur hlaupakonu í Londonmaraþoninu „sprakk“ – Skórinn alblóðugur
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Guðni svarar Ólafi fullum hálsi og sakar hann um ósannindi – „Einfaldlega staðlausir stafir“

Guðni svarar Ólafi fullum hálsi og sakar hann um ósannindi – „Einfaldlega staðlausir stafir“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa
Fréttir
Í gær

Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum

Sýndi af sér lostugt athæfi á almannafæri og játaði aftur vörslur á miklu magni af barnaníðsteiknimyndum
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“