fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Eiríkur fékk nafnlaust bréf – „Einstaklega ósmekklegt og óviðkunnanlegt að blanda löngu látnum afa mínum í það mál“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 14:18

Eiríki er ekki skemmt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiríkur Rögnvaldsson, uppgjafaprófessor í íslensku, fékk nafnlaust skammarbréf sem hann segir einstaklega ósmekklegt og óviðkunnanlegt. Í bréfinu var talað um afa Eiríks.

„Það gerist sem betur fer ekki oft að ég fái nafnlaus skammarbréf í pósti en hefur þó komið fyrir – síðast núna í dag barst mér meðfylgjandi bréf póststimplað á Egilsstöðum,“ segir Eiríkur í færslu á samfélagsmiðlum.

Bréfið var nafnlaust og stutt. Þar sagði bréfritari að afi Eiríks birtist honum öðru hverju í draumi og hefði áhyggjur af framtíð íslenskunnar. Sagt var að afi Eiríks væri óánægður með hann og að vilji að hann skipti um nafn.

„Ég get ekki sagt að mér hafi brugðið illilega við en mér fannst þetta þó ekkert þægilegt,“ segir Eiríkur. „Mér er alveg sama þótt fólk sé ósátt við mig og mína afstöðu í ýmsum málum og er til í að ræða hana við hverja sem er hvenær sem er. En mér finnst einstaklega ósmekklegt og óviðkunnanlegt að blanda löngu látnum afa mínum í það mál enda fráleitt sem þarna segir, að metnaður hans hafi komið mér í embætti prófessors í íslensku – ég minnist þess ekki að við höfum nokkurn tíma rætt starf mitt eða framtíðaráform. Hættu að þvaðra um hann afa minn, segi ég nú bara.“

Eiríkur segist vera stoltur af því að heita Eiríkur og vera af Djúpadalsættinni. Hann telji sig ekki vera henni til skammar og hefur aldrei hugleitt að skipta um nafn. „En ég vona bara að bréfritara líði betur eftir að hafa losað þennan skít úr sálinni,“ segir hann að lokum.

Bréfið sem um ræðir var sent frá Egilsstöðum. Mynd/Facebook
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa

Afhjúpa „rauða hverfið“ í Reykjavík – Nágrannar reyna að fæla vændiskaupendur frá með skjávarpa
Fréttir
Í gær

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“

Gylfi furðar sig á frétt Morgunblaðsins – „Hrein og klár afvegaleiðun umræðunnar!“
Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“