fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Dæmdur í fangelsi fyrir að nauðga vinkonu sinni á meðan kærasti hennar svaf í sama rúmi – Sagðist haldinn kynferðislegri svefnröskun

Ritstjórn DV
Föstudaginn 2. júní 2023 13:09

Héraðsdómur Reykjaness

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga vinkonu sinni. Nauðgunin átti sér stað á heimili konunnar á meðan hún var sofandi uppi í rúmi ásamt kærasta sínum. Hinn dæmdi var besti vinur kærastans en hann hafði auk þess þekkt konuna sem hann braut á frá tólf ára aldri.

Brá þegar hún sá kærastann sofandi fyrir framan sig

Nauðgunin átti sér stað að morgni dags, sunnudaginn 23. maí 2021. Kemur fram í dómnum að brotaþoli og kærasti hennar hafi hringt í hinn dæmda og boðið honum í samkvæmi til þeirra í Keflavík og borgað undir hann leigubíl úr Hafnarfirði. Þar hafi þrímenningarnir haft áfengi og fíkniefni, kannabis og kókaín, um hönd.

Um morgunin hafi brotaþoli og kærasti hennar haldið til svefnherbergis síns og farið að sofa. Nokkru síðar vaknaði svo brotaþoli upp við að verið var að hafa við hana samfarir. Hún hafi fyrst haldið að kærasti hennar væri að verki en orðið verulega brugðið þegar að hún sá hann sofandi fyrir framan sig í rúminu. Þá hafi hún áttað sig á því að vinur þeirra væri að verki og komist í mikið uppnám. Gerandinn forðaði sér í kjölfarið út af heimilinu.

Í dómnum kemur fram að DNA-rannsókn hafi sæði gerandans hafi fundist í leggöngum konunnar og því ljóst að hann hafi haft við hana samfarir.

Þjáðist af kynferðislegri svefnröskun

Lögmaður gerandans, Ómar R. Valdimarsson, freistaði þess að verja skjólstæðing sinn með því að benda á að hann þjáðist af  kynferðislegri svefnröskun (e. sexsomnia). Slík röskun lýsir sér þannig að fólk sýni af sér kynferðislega hegðun þegar það er í djúpsvefni og muni ekki eftir því þegar það vaknar.

Gerandinn undirgekkst meðal annars svefnrannsókn og voru niðurstöðurnar á þá leið að ætla mætti að hann væri haldinn slíkri röskun.

Yfirmatsmaður og þrír dómarar héraðsdóms féllust þó ekki á að röskunin gæti útskýrt hegðun mannsins. Samkvæmt gögnum úr síma hans væri afar ósennilegt að gerandinn gæti hafa sofið svo lengi að hann kæmist í djúpsvefn og að aðstæður í herbergi parsins hafi verið með þeim hætti að allt benti til þess að gerandinn hafi verið með rænu þegar hann framdi ódæðið.

Gert að greiða rúmar 9 milljónir alls

Var gerandinn því dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun, eins og áður segir, auk þess sem honum var gert að greiða þolandanum tvær milljónir króna í miskabætur. Þá var honum gert að greiða lögmanni sínum, Ómari R. Valdimarssyni, rúmar 3,3 milljónir í málsvarnarlaun og þóknun skipaðs réttargæslumanns brotaþola, Karls Georgs Sigurbjörnssonar lögmanns, rúmlega 900 þúsund krónur. Að auki þurfti hann að greiða annan sakarkostnað sem hljóðaði upp á tæpar 3 milljónir króna.

Hér má lesa ítarlegan dóm Héraðsdóms Reykjaness

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“