fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fréttir

Í huga Kremlverja einskorðast átökin við Vesturlönd ekki við Úkraínu

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 5. janúar 2023 08:00

Rússneskir hermenn á ferð. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, birtist á sjónvarpsskjáum í Rússlandi og tilkynnti þjóð sinni að Rússar hefðu sett „sérstaka hernaðaraðgerð“ í gang með því að ráðast inn í Úkraínu þá var það ekki bara upphafið að stríði við nágrannaþjóðina, stríði sem hefur afleiðingar fyrir nágrannaríki Rússlands og Úkraínu.

Ákvörðunin var upphafið að endalokum Rússlands eins og við höfum þekkt það allt frá hruni Sovétríkjanna. Um leið markar þetta hrun nokkuð stöðugrar heimsskipunar sem hefur ráðið ríkjum í Evrópu frá því að síðari heimsstyrjöldinni lauk. Afleiðingar innrásarinnar í Úkraínu munu ekki aðeins hafa áhrif á næstu árum, þær munu móta heila kynslóð innan og utan Rússlands.

Þetta er ekki boðskapur frá þungorðum vestrænum leiðarahöfundi eða fólki sem er áberandi í rússnesku ríkissjónvarpi, fólki sem hefur sífellt í hótunum um beitingu kjarnorkuvopna og árásir á Vestur-Evrópu.

Þetta kemur fram í grein eftir Dmitri Trenin á hálfopinberri rússneskri heimasíðu þar sem fjallað er um alþjóðastjórnmál. Vefsíðan höfðar aðallega til sérfræðinga í þessum málaflokki að sögn Jótlandspóstsins.

Trenin er ekki bara einhver maður úti í bæ, hann er einn reyndasti maðurinn á sviði stjórnmála- og öryggismálagreininga og hann hefur góða innsýn í það sem gerist hverju sinni í Kreml. Þess utan hefur hann ákveðin áhrif á þá stefnu sem ráðamenn í Kreml fylgja hverju sinni. Hann var forstjóri Moskvuútibús bandarísku hugveitunnar Carnegie í um 15 ár en lét af því þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Hann er nú aftur kominn í sitt gamla hlutverk sem andstæðingur Vesturlanda.

Í lauslegri þýðingu heitir grein hans „Hin sérstaka hernaðaraðgerð í Úkraínu sem vendipunktur fyrir utanríkisstefnu Rússlands nútímans“.

Rússnesk stjórnvöld vilja enn kalla stríðið „sérstaka hernaðaraðgerð“ þrátt fyrir að tugir þúsunda hafi látist í átökunum og milljónir Úkraínumanna hafi neyðst til að flýja heimili sín og land.

Í greininni slær Trenin því föstu að stríðið í Úkraínu munu gjörbreyta Rússlandi. Landamæri þess, samsetning þjóðarinnar, efnahagskerfi, grundvallaratriði og margt annað mun breytast að hans sögn.

En hann hefur ekki svo mikinn áhuga á innanríkismálum, utanríkismálin eru honum hugleiknari. Sjónir hans beinast aðallega að öryggismálum og hernaðarmálum. Hann telur að stríðið hafi í för með sér grundvallarbreytingu á stöðu og hlutverki Rússlands á alþjóðavettvangi sem og þeim ytri skilyrðum sem Rússar búa við. Þetta leiði af sér að markmið og verkefni breytist sem og hinn taktíski leikur.

Hann segir að bilið á milli austurs og vestur sé nú meira en nokkru sinni áður og í fyrsta sinn í sögu Rússlands eigi landið engan vestrænan bandamanna og ekki einu sinni land sem vill ræða við Rússland, land sem getur gegnt hlutverki milliliðs. Hann spáir langvarandi átökum og deilum sem muni teygja sig um víðan völl landfræðilega séð.

Hann segir að ósigur í stríðinu komi einfaldlega ekki til greina, það væri jafngildi hörmunga. Ólíklegt sé að samningar náist sem báðir aðilar séu sáttir við. Eina leiðin sé að sækja fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ari Hermóður sakfelldur fyrir fjárdrátt

Ari Hermóður sakfelldur fyrir fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks
Fréttir
Í gær

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu