

Alicia Scholes, dóttir Paul Scholes fyrrum leikmanns Manchester United, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum eftir að hafa birt nýjar myndir af sér á Instagram.
Alicia, sem leikur með London Pulse í ensku netboltadeildinni, birti myndaseríu þar sem hún stillti sér upp heima hjá sér og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Fylgjendur hennar hrósuðu henni í hástert í athugasemdum og kölluðu hana meðal annars „glæsilega“ og „stórkostlega“.

Scholes hefur yfir 100 þúsund fylgjendur á Instagram þar sem hún deilir bæði myndum úr daglegu lífi og frá ferli sínum í netbolta.
Hún hefur jafnframt skapað sér gott orð innan íþróttarinnar. Eftir að hafa hafið feril sinn með Manchester Thunder hjálpaði hún London Pulse í úrslitaleik Netball Super League árið 2023 og var hluti af liðinu sem endaði í þriðja sæti árið 2024.

Á síðasta ári átti hún svo stóran þátt í fyrsta sigri félagsins í Netball Super Cup þegar London Pulse lagði Loughborough Lightning að velli í úrslitum.
Alicia heldur því áfram að vekja athygli bæði innan og utan vallar.
