fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Jón Steinar segir fólki að draga úr vímuefnaneyslu á skemmtistöðum til að forðast kynferðisbrot

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 18. nóvember 2021 13:00

Jón Steinar Gunnlaugsson. Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrum dómari, skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann fjallar um metoo-bylgjuna sem gengur yfir samfélagið og slaufunarmenninguna svokölluðu sem því hefur fylgt. Það eru þó ekki afleiðingar brotanna sem eru Jóni Steinari hugleikinn heldur möguleg orsök þeirra – vímuefnaneysla. Freistar lögmaðurinn þess að opna á umræðu sem hann segir að enginn virðist þora að taka.

„Ein er samt sú hlið á þessu öllu saman sem lítið sem ekkert hefur verið rædd og sumir telja jafnvel að ekki megi minnast á. Þar á ég við áfengis- og vímuefnanotkun langflestra sem þurfa að upplifa þá dapurlegu lífsreynslu sem hér um ræðir, bæði brotamenn og brotaþola. Sumir hafa gengið svo langt að telja óheimilt að vara þá við sem verða þolendur svona brota með því að benda þeim á að varast notkun vímuefna í því skyni að forðast brot. Ég tel að áfengis- og vímuefnanotkun sé ráðandi áhrifaþáttur í langflestum þessara brota. Afleiðingar hennar geta auk nauðgana og annarra ofbeldisbrota verið ótímabærar þunganir, vanræksla og jafnvel misnotkun barna, fóstureyðingar, forsjársviptingar, skaðleg andleg áhrif á börn, framhjáhöld, slys og ótímabær andlát.“

Hann segir engan vafa um að þessi neysla sé stærsti áhrifaþátturinn í bölinu en þrátt fyrir það heyrist þær skoðanir að á þetta megi helst minnast.

„Til dæmis megi ekki vara, oftast konur, við vímuefnanotkun á skemmtistöðum. Með því sé verið að réttlæta brot misindismanna, sem á þeim brjóta. Þetta er auðvitað hálfgerður þvættingur, sem á líklega rót sína að rekja til þess að svo margir vilja geta þjónað áfengisnautn sinni í friði. Í raun er verið að segja að ekki megi benda fólki á að reyna að gæta sín sjálft. Það er samt vafalaust besta vörnin gegn svona brotum að gæta sín sjálfur. Þetta jafnast t.d. á við að gæta sín í umferðinni til að forðast slys. Ráðið er sem sagt að hætta eða draga verulega úr notkun áfengis- og vímuefna hvort sem er á skemmtistöðum eða bara heima fyrir. Slíkt er til þess fallið að draga úr hættu á þessum brotum, þó að þau yrðu seint alveg úr sögunni. Þeir sem ekki geta nýtt sér þetta ráð eru líklega háðir vímugjöfunum með þeim hætti að þeir ættu að leita sér hjálpar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Í gær

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP
Fréttir
Í gær

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans

Dómur kveðinn upp yfir manni sem réðst á starfsmann Landspítalans
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv

Segir það verða sannkallaða martröð fyrir Rússa ef þeir ráðast inn í stórborgina Kharkiv