fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
FréttirNeytendur

Síða sögð ræna íslenska foreldra – 9.000 krónur fyrir ekkert – „Krakkar eru brjálaðir í þetta“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 23. janúar 2021 11:10

Skjáskot af vefsíðu KidoPaints og Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sniðug barnamálning er auglýst grimmt á samfélagsmiðlum. Íslendingar hafa pantað málninguna en rúmum tveimur mánuðum síðar bólar enn ekkert á sendingunni. Formaður Neytendasamtakanna segir slík svik algengari en fólk grunar.

Svindlarar hafa frá örófi alda grætt á trúgirni og grandaleysi fólks. Með tilkomu tækninnar hafa umsvif og klókindi svindlara aukist og fer svindlið nú að miklu leyti fram á netinu þegar götur og símar dugðu áður fyrr.

Nýjasta dæmið um svindlara hér á landi er í formi Facebook-síðu. Um er að ræða Facebook-síðuna KidoPaints Island en síðan hefur verið auglýst grimmt á samfélagsmiðlinum. KidoPaints selur, eins og nafnið gefur til kynna, málningu sem höfðar til barna og virðist við fyrstu sýn vera mjög sniðug.

„Krakkar eru brjálaðir í þetta“

Í litríku og skemmtilegu myndbandi eru eins konar vatnsmálningarpennar kynntir til sögunnar. „Krakkar eru brjálaðir í þetta,“ segir í upphafi myndbandsins sem sýnir hvernig pennarnir virka. Pennarnir eru fylltir með vatni og málningu og svo geta börnin málað með þeim. „Málaðu án óreiðu,“ segir í myndbandinu sem hefur heillað marga.

Það virðist þó vera sem vatnslitirnir sjálfir hafi ekki heillað marga hér á landi ef marka má athugasemdir undir myndbandinu. Fólk sem hefur pantað litina í gegnum síðuna hefur nefnilega ekki fengið þá afhenta, jafnvel þó litirnir hafi verið pantaðir fyrir tveimur mánuðum. Ein kona vekur athygli á því í athugasemd undir myndbandinu að það sé einhvers konar svindl á ferðinni. „Myndi alls ekki panta frá þessu fyrirtæki,“ segir konan í athugasemdinni en nokkrir aðilar virðast hafa pantað litina fyrir jól og hugsað þá sem gjafir.

9.000 krónur fyrir ekkert

DV hafði samband við konuna sem pantaði litina fyrir tveimur mánuðum. Konan segir í samtali við blaðamann að hún hafi greitt rúmar 9.000 krónur fyrir litina en hún keypti þrjú box. Hún fékk tölvupóst frá fyrirtækinu sem staðfesti pöntunina og sagði að vörurnar væru á leiðinni. Þá fylgdi með hlekkur til að skoða stöðuna á pöntuninni. Þegar konan reyndi að opna hlekkinn komu þó engar upplýsingar um stöðuna, heldur einungis villuskilaboð. „Síðan sem þú ert að leita að er ekki til,“ stóð á skjánum þegar hún opnaði hlekkinn.

„Ef það er hægt að sanna það að þetta sé eitthvert plat væri gott að fá að vita hvort maður eigi rétt á endurgreiðslu. Það eru örugglega margir sem láta plata sig enda sannfærandi auglýsing,“ segir konan en fleiri íslenskir viðskiptavinir virðast hafa sömu sögu að segja ef marka má ummæli við auglýsingu frá fyrirtækinu á Facebook.

Ótrúlega algengt

„Við höfum ekki fengið þetta til okkar, ég kannast ekki við þetta,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtak-anna. Breki segir að Neytendasamtökin fái öðru hverju ábendingar um svindl á Facebook-síðum.

Þegar svona mál eru tilkynnt til samtakanna eru neytendur hvattir til að hafa samband við lögregluna. „Við náttúrulega bara hvetjum fólk til að kæra svona til lögreglu, þetta er lögreglumál. Við hvetjum líka fólk til þess að fara varlega, við vitum af alls konar svona svindli sem er í gangi þó svo það komi ekki oft á okkar borð,“ segir Breki.

„Það eru ofboðslega trúverðug svindl þarna úti. Við hvetjum fólk til að skoða síður sem kanna trúverðugleika hjá öðrum síðum. Endilega að kynna sér það og sér í lagi ef maður sér ýmis merki, eins og nýjar vefsíður sem hafa ekki fengið mörg meðmæli. Fólk þarf að fara varlega og vera alveg visst um að svona síður séu sannar og réttar áður en það verslar. Því miður er þetta ótrúlega algengt.“

KidoPaints ekki traustvekjandi

Eins og Breki bendir á er hægt að kanna það hvort vefsíðum sé treystandi áður en verslað er við þær. Til að mynda er hægt að nota vef-síður á borð við Scamadviser.com og Trustpilot.com til að kanna hvort vefsíðum sé treystandi. Vert er að benda á að ef KidoPaints er skoðað á Scamadviser.com má sjá að síðan er ekki áreiðanleg. Síðan fær einungis 36% í einkunn auk þess sem hún er sögð vera grunsamleg.

Ef skoðaðar eru síður sem Íslendingar nota mikið þegar þeir versla á netinu má sjá mun hærri einkunnir en Kido-Paints fær. Til dæmis fær breska fataverslunin asos.com 100% í einkunn á Scamadvi-ser. Þá fá íslenskar netverslanir á borð við Heimkaup og Aha einnig 100% í einkunn á síðunni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

EyjanNeytendur
12.04.2020

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“

Síminn stoppar ekki hjá Neytendasamtökunum – „Hefur orðið alger sprenging“
Neytendur
22.03.2020

Þetta er réttur neytenda í heimsfaraldri COVID-19

Þetta er réttur neytenda í heimsfaraldri COVID-19
Neytendur
02.02.2020

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár

8 hagnýt ráð til að hafa í huga við gerð ferilskrár
Neytendur
26.01.2020

Þetta áttu ekki að gera í atvinnuviðtali

Þetta áttu ekki að gera í atvinnuviðtali
EyjanNeytendur
01.07.2019

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“

Blöskrar verðið á vinsælu íslensku nammi í Iceland verslun: „Er búið að leggja sykurskattinn á ?“
EyjanNeytendur
20.06.2019

Hefur þú tekið smálán? – Framkvæmdu þessi 3 skref til að vernda hagsmuni þína

Hefur þú tekið smálán? – Framkvæmdu þessi 3 skref til að vernda hagsmuni þína
EyjanNeytendur
02.05.2019

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“

Einar skýtur föstum skotum að Sorpu – „Hvetjum til ábyrgari afstöðu með umhverfinu“
EyjanNeytendur
19.04.2019

Umfelgunarkostnaður getur numið tugum þúsunda

Umfelgunarkostnaður getur numið tugum þúsunda