

Héraðssaksóknari hefur ákært Zbigniew Jan Puchala fyrir tilraun til manndráps með því að hafa 4. nóvember 2018 í Þorlákshöfn ráðist á konu vopnaðir hnífi. Í ákæru er Zbigniew sagður hafa stungið konuna svo lífshætta hlaust af. Konan var er árásin átti sér stað á fimmtugsaldri samkvæmt tilkynningu lögreglu frá þeim tíma. Maðurinn er fæddur árið 1959. Þau eru bæði erlendir ríkisborgarar en hafa búið hér á landi til lengri tíma.
DV sagði frá árásinni á sínum tíma. Maðurinn var úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald á sínum tíma en sleppt að því loknu. Þótti ekki ástæða til að halda manninum í varðhaldi lengur.
Sem fyrr segir er ákært fyrir tilraun til manndráps, en vegna alvarlegrar líkamsárásar til vara. Ekki er að sjá að konan geri neina einkaréttarlega kröfu á árásarmann sinn, þó loku sé auðvitað ekki fyrir það skotið að hún höfði slíkt mál sjálf, aðskilið frá sakamálinu sem nú er rekið gegn manninum.
Málið er komið á dagskrá dómstólanna.