

Leit hefur staðið yfir að Jóni Þresti Jónssyni frá því að hann hvarf í Dublin á Írlandi þann 9. febrúar. Ekkert er vitað um ferðir hans frá því þann dag. Fjöldi Íslendinga og Íra hefur leitað að honum og ættingjar hans og vinir eru í Dublin til að leita. Í frétt Independent.ie frá því í nótt kemur fram að Jón hafi tapað sem nemur rúmlega hálfri milljón króna í póker skömmu áður en hann hvarf.
Í umfjöllun blaðsins kemur fram að Jón hafi komið til Dublin föstudaginn 8. febrúar og hafi gist á Bonnington hótelinu í Whitehall. Hann var einn á ferð því unnusta hans þurfti að leysa vegabréfsvandamál áður en hún gat haldið til Írlands og kom hún ekki fyrr en á laugardeginum.
Blaðið segir að parið hafi ætlað að vera í Dublin í 10 daga, þar af ætluðu þau að taka þátt í pókermóti í þrjá daga. Blaðið segir að talið sé að Jón hafi tekið þátt í pókerspili á föstudagskvöldinu og hafi þá tapað 4.000 evrum en það svarar til um 540.000 íslenskra króna.
Unnusta hans kom síðan á laugardeginum og vakti Jón. Þau ræddu saman að sögn blaðsins og síðan yfirgaf Jón hótelið án vegabréfs, veskis og síma. Hann sagði unnustu sinni ekki hvert hann væri að fara.
Upptaka úr eftirlitsmyndavél hótelsins sýnir Jón yfirgefa það á tólfta tímanum um morguninn og beygja til hægri í átt að Swords Road. Síðan er talið að hann hafi haldið í átt að Highfield Healthcare en eftir það er ekkert vitað um ferðir hans.

Independent.ie hefur eftir Daníel Erni Wiium, bróður Jóns, að Jón hafi hugsanlega verið með debetkort og eitthvað reiðufé á sér en það sé ekki vitað með vissu.
„Það hafa engar hreyfingar verið á bankareikningi hans. Hann spilaði póker á föstudeginum en ekki á mótinu. Hann tapaði einhverjum peningum en við vitum ekki hversu miklu.“
Hefur Independent.ie eftir Daníel. Blaðið segist hafa heimildir fyrir að Jón hafi tapað um 4.000 evrum.
„Ég spila ekki póker sjálfur en ég hef heyrt að þetta sé ekki há upphæð. Stundum vinna þeir, stundum tapa þeir. Ef Jón fór í göngutúr til að hreinsa hugann þá var það ekki vegna peninga, held ég. Jón er leigubílstjóri heima á Íslandi. Hann hefur keppt á mótum erlendis áður, til dæmis í Barcelona. Þetta er áhugamál hans.“
Sagði Daníel jafnframt.
Fjallað var um málið í þættinum CrimeCall á írsku sjónvarpstöðinni RTÉ í gærkvöldi. Þar voru sýndar upptökur úr eftirlitsmyndavélum af Jóni þegar hann yfirgaf hótelið.
Hér er hægt að sjá upptökurnar sem lögreglan hefur birt.