fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024

Dæmd vegna vefjagigtar: „Ég veit aldrei hvað bíður mín“

Mæður.com
Fimmtudaginn 6. desember 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ekki leyfa þér að dæma…

…mig þó ég geti ekki hitt þig núna.
…mig þó ég geti ekki spjallað akkurat núna.
…mig þó að ég komist kannski ekki í allar allar veislur eða viðburði.
…mig þó heimilið mitt sé í rúst og ég liggi í sófanum og hreyfi mig ekki.

Vefjagigt er eitt það óútreiknanlegasta sem þarf að lifa með. Hvað þá þegar heimurinn er komin ansi stutt á veg með að samþykkja þennan sjúkdóm en ekki dæma fólk sem aumingja og letingja.

Mér líður kannski rosalega vel í dag en eins og skriðdreki hafi rúllað yfir mig á ógnarhraða á morgun. Ég veit aldrei hvað bíður mín, ég get aðeins beðið af mér storminn og reynt að gera allt sem ég get gert og kann að gera til þess að lina verkina og setja plástur á sálina. Hvað sem það er, þá er ég að gera mitt besta til þess að hjálpa sjálfri mér.

Við skulum fara aðeins yfir einkennin í stuttu máli svo þið skiljið betur.

„Allir vefjagigtarsjúklingarnir eru með langvinna stoðkerfisverki. Algengastir eru þrálátir seiðingsverkir í hálsi og herðum sem og í mjóbaki og á utanverðum mjaðmasvæðum.  Auk þess eru margir með verki í upp- og framhandleggjum, stundum með dreifðum verkjum í höndum og samfarandi kraftleysi/klaufsku.   Verkir í lærum og kálfum eru einnig algengir, einnig verkir í iljum og tábergi. Þannig eru sumir vefjagigtarsjúklingar „alverkja”. Margir segja verkina að öllu jöfnu vera 5-7 stig á 10-skala en aðrir skora verkina 8-9 stig. Til viðbótar þessum stöðugu verkjum kvarta margir yfir stirðleika í skrokknum sem getur verið æði hamlandi. Þannig segjast margir sjúklingar vakna endurtekið um nætur bara við það að snúa sér í rúminu. Eins draga verkir  með stirðleika oft úr hreyfifærni á morgnanna.“ Tekið úr grein eftir Arnór Víkingsson.

 

Athugið að einkennalistinn er ekki tæmandi

A.  Einkenni sem nánast allir hafa
Útbreiddir stoðkerfisverkir
Stirðleiki
Þreyta
Svefntruflanir
Einkenni sem allir hafa
Áberandi á nóttunni og morgnana
Vaknar þreyttur eða búinn með orkuna fljótt.
Sefur laust, vaknar oft yfir nóttina
B.  Geðheilsa og hugsun
Þunglyndi
Kvíði
Heilaþoka
Ýmist orsakaþáttur eða afleiðing
vefjagigtar.
Ýmist orsakaþáttur eða afleiðing
vefjagigtar
Fylgir gjarnan þreytu og streitu
C. Einkenni tengd ósjálfráða 
taugakerfinu
Hjarta- /æðakerfi
Öndunarfæri
Meltingarfæri
Þvagfæri/kynfæri
Húð
Háls, nef, eyru
Ónæmiskerfi
Taugakerfi
Hraður hjartsláttur, lágur
blóðþr., hand-/fótkuldi
Hósti, hæsi, andþyngsli,
takverkur
Kviðverkir, hægðaóregla,
fæðuóþol, ógleði
Tíð þvaglát, blöðruverkir,
slæmir tíðaverkir
Þurrkur, roði, þroti, kláði
Suð, hella svimi, nefstífla,
slímhúðarþurrkur
Flensulíðan, lengi að jafna
sig eftir sýkingu
Fótapirringur, dofi,
jafnvægisleysi & fl & fl.

Þegar ég segist ekki geta hitt þig er þetta ástæðan.

Stundum læt ég mig hafa það og borga svo þrefalt fyrir það daginn eftir og ég lofa það er alveg þess virði.

Að vera 29 ára og horfast í augu við það að vera með vefjagigt er ekki eitthvað sem ég bjóst við að þurfa að gera. Þegar ég hugsa til baka þá hef ég sennilega byrjað mjög ung að fá einkennin en engin kveikt á perunni fyr en núna síðustu ár. Ég þakka fyrir að þekkingin á þessum hvimleiða sjúkdómi aukist dag frá degi.

Núna þegar ég er komin í starfsendurhæfingu þá mun ég læra betur að tækla þetta vandamál, ég mun læra að tækla verkina, geðsjúkdómana, sjálfa mig og lífið. En þangað til þarf ég þolinmæði og skilning.

Ég er að gera mitt besta.
Ég er ekki löt – Ég er kannski bara að eiga erfiðan dag.
Ekki dæma mig.

Takk Hannes, ástin mín fyrir að vera kletturinn minn og skýla mér þegar erfiðustu vindkviðurnar reyna að feykja mér til fjandans, takk fyrir að halda mér á jörðinni og leyfa mér aldrei að efast um sjálfa mig. Takk, takk fyrir þig.

Færslan er skrifuð af Valkyrju Söndru Á. Bjarkadóttur og birtist upphaflega á mæður.com.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Mistök hjá Liverpool? – Vill sjá fyrrum stjóra Chelsea við stjórnvölin

Mistök hjá Liverpool? – Vill sjá fyrrum stjóra Chelsea við stjórnvölin
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Einkunnir Tottenham og Arsenal – Havertz valinn bestur

Einkunnir Tottenham og Arsenal – Havertz valinn bestur
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri

Hákon fékk mínútur í gríðarlega mikilvægum sigri
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

England: Frábær fyrri hálfleikur tryggði Arsenal þrjú stig í stórleiknum

England: Frábær fyrri hálfleikur tryggði Arsenal þrjú stig í stórleiknum
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Ófrjósemisaðgerðum hefur fjölgað mikið í Bandaríkjunum í kjölfar þrengri heimilda til þungunarrofs

Ófrjósemisaðgerðum hefur fjölgað mikið í Bandaríkjunum í kjölfar þrengri heimilda til þungunarrofs
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning

Conte kominn með nýtt verkefni – Mun gera þriggja ára samning
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Málefni Salarins í Kópavogi: Saka bæjarstjóra um takmarkaðan skilning og áhuga á lýðræði

Málefni Salarins í Kópavogi: Saka bæjarstjóra um takmarkaðan skilning og áhuga á lýðræði
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Ögmundur segir Kveiks-málið meira en starfsmannamál – „Gróf ærumeiðing um góða og faglega fréttakonu“

Ögmundur segir Kveiks-málið meira en starfsmannamál – „Gróf ærumeiðing um góða og faglega fréttakonu“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.