Strax eftir æðislegt atriði Beyoncé á Grammy verðlaununum í nótt var ný tónlist frá henni sett á Youtube. Lagið Shining flytur Dj. Khaled ásamt Beyoncé og eiginmanni hennar Jay Z. Við erum strax byrjuð að telja niður í að tónlistarmyndbandið komi út, enda alltaf gaman að sjá þetta ofurpar vinna saman. Lagið kom fólki á óvart enda hafði ekkert verið gefið út um að þau væru að vinna með Dj. Khaled. Í laginu minnist Jay Z á tvíburana sem Beyoncé gengur með en lagið má heyra hér fyrir neðan.
https://www.youtube.com/watch?v=nD92-vOEUG8