fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026

Jóladagatal Siggu Daggar kynfræðings

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 6. desember 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigga Dögg kynfræðingur býður í desember upp á kynfræðslujóladagatal á Facebooksíðu sinni.

„Mér finnst svo gaman í dag að það eru allir með dagatal,“ segir Sigga Dögg. „Þegar maður finnur ekki tíma til að ræða málin, af hverju er þá ekki fínt að nýta tímann núna fram að jólum til að ýta aðeins við manni. Þetta er tími fjölskyldunnar og ekkert mikilvægara en að halda henni saman.“

Þetta er þriðja árið í röð sem Sigga Dögg er með slíkt jóladagatal, í fyrra var hún í samstarfi við K100 og dagatalið birtist á Facebooksíðum beggja og árið þar á undan á eigin Facebooksíðu.

1. desember: Nú er tími til að hræra í tröllaleir og leira kynfæri. Þetta þarf ekki að vera bein eftirlíking og er ekkert verra að leyfa sínum innri abstrakt listamanni að njóta sín. Þetta er líka einkar skemmtileg jólagjöf til valdra vina og vandamanna.

Sigga Dögg lenti í því óhappi að vera sett í tímabundið Facebookbann rétt áður en jóladagatalið byrjaði. Ástæðan? „Ég deildi mynd af mér á fyrirlestri og það sést í glæruna og á henni sást í krumpaða forhúð og þetta stríðir gegn reglum Facebook um nekt eða það hefur einhver tilkynnt mig. Alveg týpískt að vera sett í bann rétt áður en dagatalið byrjaði,“ segir Sigga Dögg og hlær.

Ný mynd mun koma inn daglega í jóladagatalinu. „Mig langaði bara að hafa þetta á léttu nótunum, ekki of kynlífstengt,“ segir Sigga Dögg. „Ég pósta bara inn mynd með svona skilaboðabólu, þetta er bara með húmór, ekki einhver kynlífstækni, heldur meira til að gefa fólki eitthvað til að tala um.“

2. desember: Farið saman í heitt bað eða sturtu.

„Samskiptahlutinn gleymist oft, það er einblínt svo á tæknina og þá er ég ekki bara að meina einhver hjálpartæki, í staðinn fyrir tungumálið og að kveikja á heilanum. Sambandið og rómantíkin má ekki gleymast og hvað við erum að gera. Við erum ekki að sýna hvað við kunnum, þetta er bara kósý stund saman.“

3. desember: Hlutverkaleikur, hver af jólasveinafjölskyldunni kveikir í þér?
4. desember: Raulaðu jólalag í munnmökum.
5. desember: Í hvaða landi langar ykkur að kela í?
6. desember: Allsbert ávaxtahlaðborð er á matseðli kvöldsins.

Fylgjast má með jóladagatali Siggu Daggar á Facebooksíðu hennar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Gunnar varar Íslendinga við því að storka Bandaríkjamönnum

Gunnar varar Íslendinga við því að storka Bandaríkjamönnum
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Kompany gefur grænt ljós á kaupin á enska landsliðsmanninum

Kompany gefur grænt ljós á kaupin á enska landsliðsmanninum
Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

ABBA-dæturnar fá stóran arf

ABBA-dæturnar fá stóran arf
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir

Datt ofan í kamar og sat föst í saur upp að mitti í þrjár klukkustundir
Eyjan
Fyrir 21 klukkutímum

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum ekki að boða bara eitthvað eins og síðasta ríkisstjórn – uppbyggingin er áþreifanleg

Ragnar Þór Ingólfsson: Erum ekki að boða bara eitthvað eins og síðasta ríkisstjórn – uppbyggingin er áþreifanleg
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Allt vitlaust á æfingasvæði Real Madrid – Vill að þjálfarinn hætti að tala við sig

Allt vitlaust á æfingasvæði Real Madrid – Vill að þjálfarinn hætti að tala við sig
Pressan
Í gær

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum

Ryanair með nýjung á öllum flugvöllum
433Sport
Í gær

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.