fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Ótrúleg ævisaga Whitney – söngdívunnar sem heillaði heiminn

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. ágúst 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimildarmyndin Whitney: The untold story. For the First time“ er frumsýnd á föstudag í Bíó Paradís í samstarfi við útvarpsstöðina K100.
 
Óskarverðlaunaleikstjórinn Kevin MacDonald leikstýrir myndinni, þar sem varpað er nýju ljósi á líf og feril Whitney sem átti sér enga líka og heillaði milljónir manna út um allan heim, þrátt fyrir að hún sjálf þyrfti að berjast við að ná sáttum við sína eigin fortíð sem oft hafði verið þyrnum stráð.
 
Þessi einstaka heimildamynd um Whitney Houston er afar persónuleg frásögn sem skefur ekkert utan af lífi hennar og fjölskyldunnar og kafar mun dýpra en innsýn blaðafyrirsagna hefur veitt okkur hingað til. Whitney Houston sló fleiri met í tónlistarheiminum en nokkur önnur söngkona í sögunni, þar fyrir utan lék hún einnig í fjölmörgum vinsælum kvikmyndum og flestir muna vel eftir henni í The Bodyguard á móti Kevin Costner þar sem hún lék vinsæla poppstjörnu.
 
Heimildamyndin var heimsfrumsýnd utan keppni á Cannes kvikmyndahátíðinni 2018 og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda, þar að auki hlaut hún verðlaunin besta myndin í flokki heimildamynda í fullri lengd á nýafstaðinni alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Edinborg í Skotlandi.
Fjölmargar heimildamyndir hafa komið út um stjörnuna en þessi er gerð í samvinnu við fjölskyldu Whitney.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“

Ten Hag hreinskilinn: ,,Hann á skilið fleiri mínútur“
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Endar Murk-Krissi á Bessastöðum?

Endar Murk-Krissi á Bessastöðum?
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP