Bókin Er ekki allt í lagi með þig? sem hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin í ár, tekur á heimi unglingsins en sá heimur getur sannarlega verið margslunginn. Sagan er sögð af tveimur aðalpersónum sem koma úr mismunandi umhverfi, önnur upplifði mikið einelti og hin kemur úr forréttindahópi. Þessir ólíku karakterar verða vinkonur og sagan segir frá þeim, hvernig þær takast á við daglegt líf og vináttuna. Höfundur lýsir vel togstreitunni milli þess að vera barn og unglingur.
Frásögnin lýsir vel þeim aðstæðum sem margir unglingar upplifa sig í. Þarna er togstreita um vini, og unglingarnir skilja hlutina á mismunandi hátt. Það sem einum finnst vera fullkomlega eðlileg hegðun upplifir annar á mjög neikvæðan hátt. Fjallað eru um málefni sem flestir kannast við og boðið upp á lausnir til að auðvelda unglingunum að þroskast og taka rétt á aðstæðum.
Stíll bókarinnar er góður og þar er aldrei talað niður til þess aldurshóps sem bókin fjallar um. Meginþemað í gegnum alla bókina er einelti og hvernig fólk lítur það mismunandi augum. Mikið er lagt upp úr að skoðanir og sýn unglinganna komi fram þó að á stöku stað komi inn hugleiðingar frá fullorðnum.
Mjög vel skrifuð bók þar sem efnið kemst vel til skila.