fbpx
Mánudagur 06.maí 2024

Samfélagskrafan er að listamenn séu malandi gæludýr

Hannes Lárusson gagnrýnir stöðu myndlistarinnar í viðtali á dv.is

Kristján Guðjónsson
Miðvikudaginn 2. nóvember 2016 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Beinskeytt orð Hannesar Lárussonar um íslenska myndlist sem hann lét falla í viðtali á dv.is um helgina hafa vakið nokkra athygli í listaheiminum. Tilefni viðtalsins var sýningin Kwitcherbellíakin sem hann stóð að ásamt Tinnu Grétarsdóttur og Ásmundi Ásmundssyni – en það er sami hópurinn og stóð að einni umdeildustu listsýningu síðustu ára, Koddu, árið 2009.

Ræddi Hannes meðal annars um gagnrýnisleysi íslenskra listamanna og hversu óáberandi þeir væru í umræðunni, en þar með sé það fyrst og fremst markaðurinn og pólitíkin sem ákvarði hvaða farangur íslenskt samfélag taki með sér inn í framtíðina.

„Það er engin andstaða lengur innan listaheimsins og engin gagnrýni kemur almennt frá listamönnum; sem reyndar er ekki von þar sem tilvistargrundvöllur þeirra er mjög þröngt skammtaður. Listamenn eru alltaf að reyna að gera hosur sínar grænar fyrir utanaðkomandi öflum og missa smám saman sjónar á einhverjum dýpri veruleika.
Það er ekki viðurkennt lengur í þessari menningu – og alls ekki á Íslandi – að listamenn séu hugsandi verur. Ef þið flettið upp í dagblöðum frá 20, 30 eða 40 árum síðan þá eru löng viðtöl við listamenn því þeir voru álitnir hafa eitthvað til málanna að leggja, þetta er útilokað í dag! Ef þeir halda að þeir séu svolítið gáfaðir þá leika þeir sig meira að segja heimska svo eitthvert mark verði tekið á þeim.
Þetta leiðir svo aftur til þess að alvarlegum fræðimönnum eða hugsandi fólki dettur varla lengur í hug að fá myndlistarmenn í umræður eða pallborð um pólitík, eða samfélagsmál, jafnvel ekki einu sinni um arkitektúr eða stefnumótun í eigin fagi. Samfélagskrafan virðist vera að listamenn séu grínaktugir, eilífðar popparar og „afþreyjarar“ sem umfram allt eru þægir ljáir í þúfu, malandi gæludýr. Fólk virðist ekki lengur vilja sækja vit og visku í listirnar heldur staðfestingu og réttlætingu á eigin hringavitleysu.“

Lestu viðtalið í heild sinni á www.dv.is/menning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Besta deildin: Frábær endurkoma Stjörnunnar – Skoruðu fjögur gegn Skagamönnum

Besta deildin: Frábær endurkoma Stjörnunnar – Skoruðu fjögur gegn Skagamönnum
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Auka tungl gæti verið á braut um jörðina – Vísindamenn telja sig vita hvaðan það kom

Auka tungl gæti verið á braut um jörðina – Vísindamenn telja sig vita hvaðan það kom
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

England: Liverpool hafði betur í markaleik á Anfield

England: Liverpool hafði betur í markaleik á Anfield
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Dagur frelsunar og hryllings

Dagur frelsunar og hryllings
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn

Sonur Birgittu Lífar og Enoks kominn með nafn
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

England: Chelsea lék á alls oddi gegn West Ham – Pedro hetja Brighton

England: Chelsea lék á alls oddi gegn West Ham – Pedro hetja Brighton
Eyjan
Fyrir 10 klukkutímum

Orðið á götunni: Aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar á fullu fyrir Katrínu sem virðist leggja blessun sína yfir aðferðir skrímsladeildarinnar

Orðið á götunni: Aðstoðarmenn ríkisstjórnarinnar á fullu fyrir Katrínu sem virðist leggja blessun sína yfir aðferðir skrímsladeildarinnar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Orðinn vel þreyttur á spurningum um Liverpool – ,,Í 25. skiptið þá get ég ekki svarað þessu“

Orðinn vel þreyttur á spurningum um Liverpool – ,,Í 25. skiptið þá get ég ekki svarað þessu“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Leyniskýrsla Lífs og sálar um skrifstofu Sameykis afhjúpuð – Formaðurinn vísar ásökunum um ógnarstjórn á bug

Leyniskýrsla Lífs og sálar um skrifstofu Sameykis afhjúpuð – Formaðurinn vísar ásökunum um ógnarstjórn á bug