fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Una Schram: „Mesta áhætta sem ég hef tekið var örugglega að hætta í menntaskóla“

Íris Hauksdóttir
Miðvikudaginn 11. september 2019 19:30

Una Schram. Mynd: Eyþór/DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Una Schram gaf nýverið sína fyrstu EP plötu en hún er strax farin að vinna að nýju efni. Una hefur lengi haft áhuga á tónlist og byrjaði að syngja og skrifa texta sem barn. Una er í yfirheyrslu helgarinnar.

Hvar líður þér best?
Mér líður best á flugvöllum, elska að ferðast og það er eitthvað svo fallegt við blönduna af spennunni og pirringnum þegar maður þarf bíða tímunum saman eftir að komast inn í vélina.

Hvað óttastu mest?
Núna er ég mest hrædd við loftslagsbreytingar.

Hvert er þitt stærsta afrek?
Ætli mitt stærsta afrek hafi ekki verið að gefa út þessa plötu. Það tók á tilfinningalega að kyngja öllum efasemdum og áhyggjum og henda henni út. Ég er stolt af því að hafa getað það.

Furðulegasta starf sem þú hefur unnið við?
Ég vann síðast á leikskóla og áður hafði ég eiginlega alltaf unnið í þjónustustörfum, svo það var mjög sérstök breyting. En það var eitt yndislegasta jobb sem ég hef verið í og svo ótrúlega lærdómsríkt.

Hvernig væri bjórinn Una?
Einhver fruity og léttur lager.

Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Ung og út um allt

Hvert er besta ráð sem þú hefur fengið?
Afi minn gaf mér eitt besta ráð sem ég hef fengið á tíma sem ég virkilega þarfnaðist þess: Gerðu gott úr slæmu og ekki flýja erfiðar aðstæður, hvert sem þú ferð bíða þín vandamál sem þarf að leysa.

Mynd: Eyþór Árnason

Hvað er leiðinlegasta húsverkið
Það er lang leiðinlegast að vaska upp, en bara þegar diskarnir eru búnir að bíða lengi.

Besta bíómynd allra tíma?
Ómægat þessi spurning er eiginlega ómöguleg, en When They See Us er besta mynd sem ég hef séð nýlega, stór plús að henni er leikstýrt af konu. Svo er American Gangster all time fave.

Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Ég er held ég frekar sátt með þann hæfileika sem mér var gefinn, s.s. að syngja en ég vil leggja inn mikla vinnu og verða betri.

Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Mesta áhætta sem ég hef tekið var örugglega að hætta í menntaskóla. Það var samt eiginlega óvart af því að ég ætlaði mér bara að taka pásu, flutti til Kaupmannahafnar með foreldrum mínum og byrjaði svo ekki aftur. En þetta varð á endanum mjög góð ákvörðun og ég er núna á leiðinni í háskólanám án stúdentsprófs!

Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
Það fer rosalega í mig þegar orð sem geta og hafa verið notuð á niðrandi hátt eru notuð í daglegu tali. Eins og n-orðið, orð yfir samkynhneigða og niðrandi orð yfir konur. Svo er stranglega bannað að sussa á mig, það fer alveg með mig.

Hvað geturu sjaldnast staðist eða ert góð í að réttlæta fyrir þér?
Ég réttlæti of mikið fyrir mér hvað ég fer oft seint að sofa á kvöldin. Ég læt eins og það hafi ekki áhrif á mig en ég á inni marga klukkutíma af svefni.

Hvað er á döfinni hjá þér?
Það er tónlistarnámið í Englandi og meiri lagaútgáfa!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“