fbpx
Sunnudagur 05.maí 2024
Fókus

Yfirheyrslan – Sigurður Þ. Ragnarsson: „Ég get orðið fjári reiður ef mér misbýður“

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 16. mars 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður var einn ástsælasti veðurfréttamaður landsins og gengur gjarnan undir viðurnefninu Siggi stormur. Á síðasta ári söðlaði hann um og komst í bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir Miðflokkinn. DV tók Sigurð í yfirheyrslu.

 

Hjúskaparstaða og börn?

Eingiftur og við hjónin eigum þrjá stráka. Ég kann ekki að búa til stelpur.

 

Fyrsta atvinnan?

Það var verkamannavinna hjá Álverinu í Straumsvík. Ég var þar nokkur sumur.

 

Hefur þú æft einhverja íþrótt?

Ég er sérstakur áhugamaður um gamla bíla. Er það ekki bifreiðaíþrótt? Hef skotið handbolta, fyrir svona 35 árum eða svo, en hitti ekki á markið.

 

Uppáhaldshljómsveit?

Brimkló, Ríó Tríó, Spilverk þjóðanna, Savannatríóið og fleira í þeim dúr.

 

Hvort er skemmtilegra, veðurfræði eða pólitík?

Ég var svo heppinn að hafa í háskólanámi mínu blandað saman jarðvísindum og veðurfræði og hef því mjög næringarríka sýn á náttúruna hvar sem ég er og það ótrúlega skemmtilegt, eiginlega ólýsanlega skemmtilegt. Pólitíkin er líka skemmtileg. Gaman að geta haft bein áhrif á hvernig samfélagið sem maður býr í þróast áfram. Pólitíkin er samt heldur þyngri, svona almennt séð.

 

Uppáhaldssjónvarpsefni?

Þættir sem sýna náttúru Íslands samtvinnaða við lífið í landinu. Náttúruvísindaþættir af ýmsum toga. Þar á eftir kemur fréttatengt efni.

 

Trúir þú á guð?

Ég gerði það afdráttarlaust sem krakki, en með árunum hefur sú trú dvínað allsvakalega. Ég þarf greinilega að fá einhverja vitjun svo snúa megi þessu við.

 

Hvort heldur þú með Tomma eða Jenna?

Kettir geta verið yndislegir. Mýs síður. Þannig að ég segi Tommi.

 

Mannkostir þínir?

Ég er mikill fjölskyldumaður og vil helst að fjölskyldan sé sem mest saman. Held að það megi flokka það sem mannkosti.

 

En lestir?

Ég get orðið fjári reiður ef mér misbýður. Það gerist sjaldan sem betur fer.

 

Klukkan hvað vaknar þú á morgnana?

Það er mjög misjafnt. Virka daga um klukkan 7.30 til 9.00. Um helgar sef ég lengur. Var A-maður framan af ævi en myndi flokkast B-maður í dag.

 

Besta ráð sem þú hefur fengið?

Það var ráð frá föður mínum að byrja aldrei að reykja. Ég er ævinlega þakklátur fyrir það. Mörg ráð sem hann hefur gefið mér hafa reynst heilladrjúg. Svo er konan mín enn að ala mig upp og gefa mér góð ráð. Til dæmis að þvo buxur á röngunni. Búinn að ná því. Þvo baðkarið eftir notkun. Búinn að ná því.

 

Fyrsta utanlandsferðin?

Til Noregs með Sigga afa og Borgu ömmu. Afi var skipstjóri á millilandaskipum og ég pjakkurinn fékk að fara með. Það var Bodø í Noregi sjö ára gamall.

 

Hvort kanntu betur við þig í hæð eða lægð?

Þetta tengi ég nú við veðurfræðina frekar en geðslag. Hæðin er miklu miklu betri. Miklu betra veður, sólríkara og þurrara. Ég vil fleiri hæðir í mitt líf.

 

Fyrsti bíllinn?

Ford Cortina, árgerð 1976, kremgul. Verst þegar ég lenti í því að halda á gírstönginni í höndinni á ljósastýrðum gatnamótum í töluverðri umferð. Neyðarlegt. Gott að vera ekki Siggi stormur þá.

 

Hvaða leikari mundi leika þig í kvikmynd?

Það er einsýnt. Danny DeVito. Hann hefur allavega hæðina og þyngdina í hlutverkið en kannski aðeins of gamall … eða Dustin Hoffman að leika veðurfræðing. Hoffmann hefur líka hæðina til að bera og getur verið alvarlegur sem þarf þegar maður er að búa til veðurspár í aðdraganda storms.

 

Fyrsti stjórnmálaflokkurinn sem þú kaust?

Sjálfstæðisflokkurinn. Ég var mjög virkur þar.

 

Eitthvað að lokum?

Núna þegar ég er orðinn 52 ára er að brjótast fram í mér ógurlegur áhugi á ættfræði. Ég átti afa sem hvarf af skipi sínu Belgaum við Grimsby á Englandi 1929 og fannst aldrei svo vitað sé. Mig langar mikið að komast að því hvort hann hafi einhvern tímann fundist. En veit ekkert hvernig ég á að snúa mér í því! Er ekki allt hægt í dag??

Jú, svo elska ég konuna mína, Hólmfríði Þórisdóttur, óstjórnlega.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Baldvin Z man nákvæmlega daginn sem hann varð vitni að flugslysi

Baldvin Z man nákvæmlega daginn sem hann varð vitni að flugslysi
Fókus
Fyrir 4 dögum

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“

Karlmenn lýsa skelfilegri aukaverkun af Ozempic – „Þú getur sagt bless við kynlíf“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“

„Ég er náttúrlega helvítis aumingi eins og Íslendingar að nenna ekki að mótmæla“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“

Mistök að veita Britney frelsi, segir geðlæknir – „Hún er stjórnlaus“