Í öllum betri bæjum eru nektarklúbbar, Björt. Þýðir ekkert að reyna að gera Reykjavík að ráðstefnuborg ef engir eru nektarklúbbar og spilavíti.”
Þessi orð Brynjars vöktu mikla athygli um helgina en þau lét Brynjar falla á Facebook síðu hjá Björt Ólafsdóttur umhverfisráðherra. Í kjölfarið birtu flestir miðlar fréttir. Sjálfur sagði Brynjar að hann væri að slá á létta strengi. Það dugði þó ekki til. Brynjar fékk yfir sig svívirðingar og var úthúðað á samskiptamiðlum. Var þingmanninum bent á að í framtíðinni væri gott að nota broskalla til að leggja áherslu á að hann væri að skemmta lesendum sínum.
Brynjar skrifar á Facebook í dag:
„Getur einhver upplýst mig um á hvaða takka á tölvunni ég þarf að ýta til að framkalla broskall við statusa? Margir telja mikilvægt að ég læri það strax svo ég komi ekki þeim sem tala fyrir hönd þjóðarinnar hér á fésbókinni í fullkomið uppnám.“