

Fangaverðir í fangelsi í Borås í Svíþjóð eru gagnrýndir fyrir slæleg viðbrögð vegna flótta fanga úr fangelsinu. Voru þeir ekki með viðeigandi símanúmer hjá lögreglunni á svæðinu til að hringja í og vissu í raun ekki hvernig þeir áttu að bregðast við vegna skorts á þjálfun. Eru fangelsismálayfirvöld einnig gagnrýnd fyrir lélega þjálfun fangavarða.
Aftonbladet fjallar um málið. Borås er borg í Suður-Svíþjóð og þar búa svipað margir íbúar og í Reykjavík.
Flóttinn átti sér stað á níunda tímanum að morgni í september síðastliðnum. Fangar voru þá í útivist þegar einn þeirra hneig niður og virtist vera að fá flog. Síðar kom í ljós að hann lét sig detta og þóttist vera veikur til að draga athygli fangavarða frá flóttanum.
Á sama tíma hoppuðu tveir fangar sem báðir hafa tengsl við glæpagengi yfir innra öryggishlið fangelsisins. Þeir hlupu síðan að opnum skúr þar sem inni voru ýmis tæki og tól vegna viðhalds og framkvæmda og tóku tvo bjálka og rafmagnssnúru sem þeir notuðu til að klifra yfir ytri vegg fangelsisins og síga síðan niður á jörðina fyrir utan hann.
Fangarnir komust þó ekki langt þeir náðust um þrjá kílómetra frá fangelsinu eftir ábendingar frá almenningi.
Rannsókn á flóttanum hefur leitt í ljós ýmsa misbresti sem auðvelduðu flóttann. Skipt hafði verið um síma í fangelsinu og ekki var búið að vista þar númerið á lögreglustöð borgarinnar. Símkerfið beindi símtali fangavarða til lögreglunnar í Alingsås sem er um 45 kílómetra norðvestur af Borås. Það lögregluembætti sleit símtalinu og brugðu fangaverðirnir þá á það ráð að hringja í almenna neyðarnúmerið 112.
Fangaverðirnir og raunar aðrir viðbragðsaðilar á svæðinu höfðu aldrei æft hvernig bregðast ætti við fangaflótta. Fangaverðirnir vissu því ekki hvernig þeir áttu að stoppa fangana frá því að strjúka. Fangaverðir voru með kylfur og piparúða og var sagt að nota allt sem þeir hefðu til að stöðva fangana. Það neituðu þeir að gera og kölluðu eingöngu á fangana og skipuðu þeim að stoppa sem bar engan árangur.
Skúrinn þar sem fangarnir náðu í bjálkann og snúruna til að nota við strokið átti með réttu að vera læstur. Fangaverðir vanmátu því hættuna af því.
Einnig höfðu fangarnir sem flúðu sést horfa nokkrum dögum áður á skúrinn og hvísla ótt og títt. Kvöldið áður höfðu einnig allar fangarnir hópast saman og voru að ræða sín á milli en þegar fangaverðir komu að og spurðu hvað þeir væru að tala um hlógu fangarnir bara og hópurinn tvístraðist.
Það virðist því ýmislegt hafa farið úrskeiðis fyrir og á meðan flóttanum stóð.
Settur fangelsismálastjóri Svíþjóðar segir að öryggi og þjálfun fangavarða sé nú í endurskoðun en allir séu mannlegir og geti gert mistök.