
Scott McTominay, miðjumaður Napoli, hefur hvatt stjóra liðsins, Antonio Conte, til að reyna að fá Kobbie Mainoo frá Manchester United í janúar.
McTominay hefur verið einn af lykilmönnum Napoli síðan hann gekk til liðs við félagið fyrir síðastu leiktíð og var valinn leikmaður tímabilsins í Serie A eftir að hafa hjálpað liðinu að vinna ítalska meistaratitilinn undir stjórn Conte.
The Sun heldur því fram í dag að McTominay hafi beðið Conte og stjórn Napoli að sækja Mainnoo, sem er úti í kuldanum hjá United. Hefur hann verið orðaður við brottför, þá helst á láni, vegna þess.
Mainoo var í stóru hlutveri er Erik ten Hag var stjóri United en það sama hefur ekki verið uppi á tengingnum eftir að Ruben Amorim tók við.