
AC Milan hefur sett Niclas Fullkrug, framherja West Ham United, á óskalista sinn fyrir janúargluggann, samkvæmt ítalskum miðlum.
Milan, sem er á toppi Serie A, leitar að nýjum framherja til að styrkja sóknarlínuna. Vill Max Allegri auka breiddina fyrir átökin á seinni hluta leiktíðar.
Santiago Gimenez hefur átt í vandræðum og glímt við meiðsli, á meðan, Christopher Nkunku sem er á láni frá Chelsea, hefur ekki náð að setja mark sitt nógiu vel á liðið.
Talið er að fleiri félög fylgist með Fullkrug, sem gekk í raðir West Ham fyrir síðustu leiktíð og er samningsbundinn til 2028.