fbpx
Mánudagur 15.desember 2025
433Sport

Hilmar McShane ráðinn til Vals

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 11. nóvember 2025 07:00

Mynd: Valur

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hilmar McShane hefur verið ráðinn til Vals, þar sem hann verður styrktar- og frammistöðuþjálfara meistaraflokks kvenna og jafnframt mun hann aðstoða við þjálfun meistaraflokks karla og yngri flokka félagsins.

Hilmar er með mikla reynslu úr íslenska boltanum sem leikmaður og hefur hann verið styrktarþjálfari Gróttu undanfarin tvö ár.

Tilkynning Vals
Knattspyrnudeild Vals hefur ráðið Hilmar McShane sem styrktar- og frammistöðuþjálfara meistaraflokks kvenna. Hann mun jafnframt aðstoða við þjálfun meistaraflokks karla og yngri flokka félagsins.

Hilmar býr yfir mikilli þekkingu og reynslu, með meistaragráðu í íþróttavísindum með áherslu á þjálfun. Síðustu tvö ár hefur hann starfað sem styrktarþjálfari hjá meistaraflokkum karla og kvenna hjá Gróttu.

Auk menntunar sinnar þekkir Hilmar íslenskan fótbolta út og inn enda sjálfur fyrrum leikmaður.

Gareth Owen, tæknilegur yfirmaður knattspyrnudeildar Vals:

„Við erum gríðarlega ánægð með að fá Hilmar til Vals. Menntun hans, ásamt víðtækri reynslu í styrktar- og frammistöðuþjálfun og ferill hans sem leikmaður er eitthvað sem mun nýtast okkur vel. Hann verður mikill styrkur, sérstaklega fyrir meistaraflokk kvenna, en mun jafnframt styðja Kirian í starfi með karlaliðið okkar og yngri flokka.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar