fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Vinsælastar og ríkastar

Þetta eru tíu auðugustu fyrirsætur í heimi

Indíana Ása Hreinsdóttir
Laugardaginn 16. janúar 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ofurfyrirsætur eru aftur orðnar að ofurstjörnum líkt og þegar Naomi Campbell, Cindy Crawford, Christy Turlington og Linda Evangelista voru upp á sitt besta. Hér eru nöfn fyrirsætanna sem tískurisarnir slást um.

Elskar glamúrinn

Hilary Rhoda er bandarísk fyrirsæta, fædd 1987. Hún hefur verið andlit Estee Lauder og unnið fyrir merki á borð við Hugo Boss, Ralph Lauren og Nike. Slúðurblöðin elska Hilary sem elskar glamúr og athygli. Hún er gift íþróttamanninum Sean Avery en athygli vakti að hvorki móðir hennar né bróðir voru viðstödd giftinguna.

Er kínversk og vinsælasta asíska fyrirsætan í dag.
Liu Wen Er kínversk og vinsælasta asíska fyrirsætan í dag.

Mynd: epa

Uppáhald margra

Hin kínverska Liu Wen er uppáhalds Victoria’s Secret-engill margra. Wen er 25 ára og hefur starfað fyrir tískurisa á borð við Hugo Boss, Calvin Klein og Estee Lauder. Wen er vinsælasta asíska fyrirsætan í dag.

Brasilíska fyrirsætan er alltaf jafn vinsæl.
Gisele Bündchen Brasilíska fyrirsætan er alltaf jafn vinsæl.

Mynd: epa

Risastjarna

Gisele er ekki aðeins drottning tískupallanna heldur einnig stórt nafn í Hollywood. Hún hefur verið bendluð við nokkra af frægustu mönnum í heimi og er í dag gift NFL-stjörnunni Tom Brady og eiga hjónin tvö börn.

Hefur verið lengi í bransanum.
Kate Moss Hefur verið lengi í bransanum.

42 ára ofurstjarna

Þrátt fyrir að hafa verið í bransanum í mjög langan tíma er partípinninn Kate Moss enn gríðarvinsæl. Moss var uppgötvuð 14 ára en hún er fædd 1974 og verður 42 ára í næstu viku. Kate hefur auðgast vel af samningum sínum við tískurisa á borð við Liu-Jo, Versace, Rimmel og Vogue Eyewear.

Er frá Suður-Afríku.
Candice Swanepoel Er frá Suður-Afríku.

Mynd: epa

Moldrík

Candice Swanepoel er frá Suður-Afríku, fædd 1988 en hóf að starfa sem fyrirsæta 15 ára. Hún er einn vinsælasti Victoria’s Secret-engillinn og hefur einnig unnið með IMG, Max Factor, Versace og Juicy Couture. Candice sat í tíunda sæti á lista Forbes yfir þær fyrirsætur sem þénuðu mest árið 2012.

Er gift einum frægasta grínista Bretlands.
Lara Stone Er gift einum frægasta grínista Bretlands.

Mynd: epa

Gift grínista

Hin hollenska Lara Stone er 32 ára og eiginkona heimsfræga grínistans Davids Walliams úr Little Britain. Lara hefur unnið fyrir öll frægustu merkin og var í áttunda sæti lista Forbes yfir tekjuhæstu fyrirsætur ársins 2012.

Ambrosio starfar sem leikkona í Hollywood samhliðA módelstörfunum.
Alessandra Ambrosio Ambrosio starfar sem leikkona í Hollywood samhliðA módelstörfunum.

Mynd: epa

Heimsfræg og vinsæl

Brasilísku ofurfyrirsætunni Alessöndru Ambrosio hefur tekist að skapa sér nafn sem leikkona í Hollywood. Alessandra er 34 ára, tveggja barna móðir og gift viðskiptajöfrinum Jamie Mazur. Abrosio hefur unnið fyrir merki á borð við Christian Dior, Ralph Lauren og Armani Exchange.

Á von á sínu fyrsta barni.
Bar Refaeli Á von á sínu fyrsta barni.

Mynd: epa

Fjölhæf fyrirsæta

Ísraelska fyrirsætan Bar Refaeli hefur einnig reynt fyrir sér sem leik- og sjónvarpskona. Bar er gífurlega vinsæl, hefur unnið með öllum helstu merkjunum og á nú von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, viðskiptajöfrinum Adi Ezra, sem hún giftist síðasta haust.

Er flott fyrirsæta.
Adriana Lima Er flott fyrirsæta.

Mynd: epa

Vinsæl Lima

Adriana Lima er brasilísk fyrirsæta og leikkona. Hún var talskona snyrtivörufyrirtækisins Maybelline frá 2003 til 2009 og er líklega þekktust sem ein af englum Victoria’s Secret en hún hefur unnið lengst allra fyrirsæta með undirfatafyrirtækinu. Margir muna líka eftir henni úr Super Bowl- og Kia Motors-auglýsingunum.

Miranda stofnaði eigið snyrtivörufyrirtæki.
Miranda Kerr Miranda stofnaði eigið snyrtivörufyrirtæki.

Mynd: epa

Vinsælust allra

Á toppi listans yfir ríkustu fyrirsætur í heimi situr Miranda Kerr, 32 ára áströlsk fyrirsæta sem var aðeins þrettán ára þegar hún byrjaði að vinna í bransanum. Kerr var um tíma gift Hollywood-leikaranum Orlando Bloom og á með honum eitt barn. Miranda hefur verið ein af allra vinsælustu fyrirsætum heims frá árinu 2007. Hún rekur eigið snyrtivörufyrirtæki, KORA Organics, og hefur skrifað sjálfshjálparbók.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar