fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Guðný og Stefán fengið nóg og yfirgefa Ísland: Ömurlegt veður, björt sumur og okurvextir

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Mánudaginn 29. ágúst 2016 14:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán og Guðný munu ekki sakna íslenska veðurfarsins, að greiða fyrir RÚV og myrkursins í desember. Þá eru þau ósátt við háa vexti íslenskra banka. Þau hafa því ákveðið að yfirgefa Ísland og freista gæfunnar í Danmörku. Frá þessu er greint á Bleikt.is en þar er haft eftir þeim að erfitt sé að koma undir sig fótunum. Þá sé ýmislegt sem betur megi fara.

Parið talar opinskátt um flutninginn og hafa stofnað vefsíðu þar sem hægt er að fylgjast með hvernig þeim gengur. Á Youtube birta þau svo myndskeið þar sem þau telja upp þá hluti sem þau munu ekki sakna en myndskeiðið má sjá hér. Á Instagram birta þau svo myndir yfir hlutina sem þau munu sakna en á listanum er kötturinn þeirra Mia, ís og pylsa og lambakjöt.

Stefán og Guðný munu ekki sakna:

  1. Veðursins

  2. Birtunnar á sumrin

  3. Þurfa greiða fyrir RÚV, „endurtekningar og ömurlegir þættir.“

  4. Myrkursins

  5. Okur á matvöru

  6. Leigumarkaðarins, „erfitt að leiga, ef þú ert í námi er það nánast ómögulegt“.

  7. Okurvaxta á húsnæðislánum, „á Íslandi eru hæstu vextir í heiminum, þetta eru ástæðurnar af hverju við erum að yfirgefa landið okkar. Okkar fallega land.“

Hér má sjá myndskeið Guðnýjar og Stefáns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“

Segja þessa fæðu ekkert hafa með íslenska karlmennsku að gera – „Ertu maður eða mús?“
Fókus
Í gær

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði

Sophia Bush kemur út úr skápnum – Blæs á kjaftasögurnar um hvernig nýja sambandið byrjaði
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda