Babb í bátinn fyrir hinn bíllausa lífsstíl
Sjónvarpsstjarnan Gísli Marteinn Baldursson varð fyrir því óláni í vikunni að slíta hásin í fótbolta og hefur síðan verið bundinn í gifs á hægri fæti. Gísli Marteinn hefur öðrum fremur talað fyrir ágæti hins bíllausa lífsstíls á undanförnum árum en viðurkennir á Twitter í vikunni að hann hafi áttað sig á að allt verði erfiðara við aðstæður sem þessar.
„Ég er ekki að segja að bíllaus lífsstíll í gifsi, með tvær dætur og hund sé ekkert mál. Bara að segja að það er alveg hægt. #strætó“
Hér fyrir neðan má sjá mynd sem Gísli birti, eftir að hafa meiðst illa.
Í öðrum fréttum er þetta helst. Slitin hásin í fótboltaleik kvöldsins. pic.twitter.com/dd0ocOD6Sk
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) August 23, 2016