fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fókus

Greta Salóme vann: Raddirnar til Svíþjóðar

Þjóðin hefur kosið eftir æsispennandi lokakeppni

Ritstjórn DV
Laugardaginn 20. febrúar 2016 22:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raddirnar, eða Hear them Calling, sigraði i undankeppni Eurovision á Íslandi og verður því framlag Íslands til keppninnar í ár. Það þýðir að söngvari og höfundur lagsins, Greta Salóme Stefánsdóttir fer í annað skiptið fyrir hönd landsins í keppnina. Hún söng áður með Jónsa í laginu Never forget.

Lögin Augnablik og Raddirnar komust í úrslit en dómnefndir kjördæmanna völdu aftur á móti Augnablik og Á ný áfram. Það vakti hinsvegar athygli að lagið Á ný, sem Elísabet Ormslev flutti, fékk aðeins um 5000 atkvæði áhorfenda á meðan Raddirnar fékk um 20 þúsund stig. Það nægði til þess að skjóta laginu upp í annað sætið. Þá fékk Augnablik 22 þúsund atkvæði í símakosningunni.

Atriðið var metnaðarfullt.
Glæsilegt atriði Atriðið var metnaðarfullt.

Nýtt fyrirkomulag var í keppninni nú, þegar kjördæmi með sérstökum dómnefndum vó á móti símkosningu. Tvö efstu lögin fóru svo áfram í hreint einvígi þar sem símakosninginn gilti ein og sér. Þjóðin hefur því kosið; Greta Salóme fer út.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikarinn olli reiði er hann birti færslu á óheppilegum tíma – „Hvað í fjandanum?“

Leikarinn olli reiði er hann birti færslu á óheppilegum tíma – „Hvað í fjandanum?“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Dóttir Jack Nicholson birtir sjaldséða mynd á 89 ára afmælinu – Svona lítur hann út í dag

Dóttir Jack Nicholson birtir sjaldséða mynd á 89 ára afmælinu – Svona lítur hann út í dag
Fókus
Fyrir 1 viku

Stjarnan úr American Pie mætt á OnlyFans

Stjarnan úr American Pie mætt á OnlyFans
Fókus
Fyrir 1 viku

Hreimi Erni gafst tækifæri til að svíkja félaga sína – „Ég veit ekki hvort þeir viti þetta”

Hreimi Erni gafst tækifæri til að svíkja félaga sína – „Ég veit ekki hvort þeir viti þetta”