fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fókus

Nína Björk og Aron selja geggjað hús á Grettisgötu

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Nína Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari og Aron P. Karlsson hafa sett einbýlishús sitt á Grettisgötu 35 á sölu. 

Aron og Nína Björk. Mynd: Facebook.

Húsið er 243 fm, byggt árið 1914, á þremur hæðum með tveimur einkastæðum á lóð og tveimur aukaíbúðum. Húsið er steinsnar frá menningu og matsölustöðum miðbæjarins.

Húsið skiptist í anddyri, hol, gestasnyrtingu, setustofu með nýrri kamínu, stofu og eldhús á 1. hæð.

Gengið er úr anddyri upp stiga á 2. hæð sem skiptist í hol með geymslu, hjónasvítu með sér fataherbergi, svefnherbergi, baðherbergi. Úr holi er stigi upp á gott geymsluloft.

Kjallari er með sérinngangi, en einnig er hægt að fara niður úr holi á efri hæð með hringstiga. Kjallarinn skiptist í anddyri, geymslu undir tröppum, hol, eldhús, stofu með geymslu inn af, svefnherbergi og baðherbergi.

Skúr er í bakgarði á lóðinni sem er merktur geymsla en hefur verið leigður út sem stúdíóíbúð.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin