Fókus

Ólafur Ragnar og Dorrit að skilja

Mynd
Ólafur og Dorrit.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff eru að skilja eftir 23 ára hjónaband. Vísir greinir frá þessu og samkvæmt heimildum þeirra hefur ferlið verið í gangi undanfarna mánuði og sér nú fyrir endann á því. 

Ólafur Ragnar og Dorrit gengu í hjónaband á sextugsafmæli Ólafs Ragnars í maí 2003. Hún naut mikillar hylli þjóðarinnar og var almenn hrifning þegar hún og Ólafur fóru að hittast skömmu fyrir aldamót.

Mynd
DV í október 1999.

Ólafur Ragnar og Dorrit hafa búið í Mosfellsbæ frá því að forsetatíð hans lauk, hefur hún þó haft annan fótinn í Lundúnum. Ólafur og Dorrit voru síðast opinberlega saman nú í júlí á minningarhátíð með furstanum af Mónakó. 

Dorrit var forsetafrú í 13 ár og átti mörg augnablik sem snertu þjóðina, allt frá því að tendra á jólatréinu í Kringlunni yfir í að vera verndari Dags barnsins. Eitt eftirminnilegasta augnablikið kom þó á Ólympíuleikunum 2008 þegar hún sagði hina fleygu setningu: „Ísland er ekki lítið land, það er stórasta land í heimi.“