Fókus

Testell eins ástsælasta söngvara íslensku þjóðarinnar á uppboði

Mynd

Testell sem var í eigu tónlistargoðsagnarinnar Ragnars Bjarnasonar heitins er nú á uppboði hjá Fold uppboðshúsi. 

Uppboðinu lýkur þriðjudaginn og má þar finna ýmsa muni á borð við keramik frá Finnlandi, Þýskalandi og Japan. Þá er verk nr. 17 sérstaklega merkt sem þrettán muna testell sem hafi verið í eigu Ragga Bjarna. 

Mynd
Einn bollanna úr stelli Ragga Bjarna.

Ragnar var einn ástsælandi söngvari þjóðarinnar en hann lést 25. febrúar 2020 85 ára að aldri. 

Sjá frétt: Einn ástælasti söngvari þjóðarinnar fallinn frá

Testellið og aðrir munir á uppboðinu eru til sýnis í Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14, 105 Reykjavík. Opið er 11-17 alla virka daga.

Skoða uppboðið