

Ein eftirminnilegustu réttarhöld 21. aldarinnar áttu sér stað árið 2005 en þar svaraði tónlistarmaðurinn Michael Jackson til saka vegna ásakana um barnaníð. Myndavélar voru ekki leyfðar í aðalmeðferðinni sem stóð yfir í tæpa fjóra mánuði. Þar báru meðal annars vitni meintur þolandi, fjölskylda hans og stjörnurnar Macaulay Culkin og Chris Tucker.
Nú eru komnir út heimildarþættir á Netflix sem nefnast Michael Jackson: The Verdict þar sem fjallað er um þær ásakanir að Jackson hafi misnotað 13 ára gamlan dreng, Gavin Arvizo, á búgarði sínum Neverland. Þar er nokkrum sprengjum varpað sem ekki er víst að lesendur hafi heyrt um áður.
„Þetta var mál sem fjallaði um einn þekktasta mann heimsins,“ segir fyrrum saksóknarinn Ron Zonen í þáttunum. „Hann var einstakur hvað varðaði hæfileika sína, færni og afrek. Og hann var einstakur í því hvernig hann níddist á börnum.“
Jackson hélt fram sakleysi sínu og fór svo að hann var sýknaður af öllum tíu liðum ákærunnar.
People hefur nú tekið saman nokkrar stærstu sprengjurnar sem varpað var í þáttunum.
Áður en fyrsta vitnið var leitt fram í dómsmálinu, breski fjölmiðlamaðurinn Martin Bashir, ákvað ákæruvaldið að spila heimildarmyndina sem Bashir gerði um tónlistarmanninn, Living with Michael Jackson, í heild sinni fyrir kviðdóminn. Í myndinni má finna brot úr mörgum þekktustu lögum tónlistarmannsins og segir í heimildarþáttunum að kviðdómendur hafi augljóslega stigið dans á meðan þeir horfðu á myndina.
„Ég leit í kringum mig og allt fólkið inni í dómsalnum, kviðdómurinn, dómarinn og bara allir voru að dilla höfðum í takt við tónlistina,“ segir rithöfundurinn J. Randy Taraborrelli í þáttunum en hann skrifaði æviminningar Jacksons. Rannsóknarblaðamaðurinn Diane Dimond sem fjallaði um aðalmeðferðina segir að kviðdómurinn hafi „bókstaflega sveiflast til og frá í sætum sínum“.
Lögmaðurinn Brian Oxman starfaði fyrir fjölskyldu Jacksons en hann segir í þáttunum að Michael Jackson hafi beðið hann um að rannsaka bakgrunn þolandans, Gavin Arvizo, og fjölskyldu hans. Var markmiðið að finna þar eitthvað misjafnt sem gæti dregið úr trúverðugleika drengsins sem var að berjast við krabbamein þegar Jackson vingaðist við hann. Oxman komst að því að Gavin hafi verið gripinn við búðarhnupl úr verslun JCPenney árið 1998. Viðbrögð móður Gavins, Jant Arvizo, við þessu var að stefna versluninni og saka öryggisvörðinn um óþarfa valdbeitingu og ofbeldi. JCPenney ákvað að gera upp málið með dómsátt og fékk Arvizo-fjölskyldan um 152 þúsund Bandaríkjadali í bætur. Hluti bótanna var eyrnamerktur Gavin og systkinum hans en hluti rann til móður þeirra. Eitt helsta sönnunargagnið í málinu var áverkaskýrsla sem átti að sanna að öryggisvörðurinn hefði beitt hana ofbeldi. Við skýrslugjöf var hún spurð hvort að þáverandi eiginmaður hennar, David, hefði mögulega veitt henni þessa áverka en Janet sagði þá að maður hennar hefði aldrei beitt hana ofbeldi. Þetta fannst Oxman athyglisvert í ljósi þess að David var svo handtekinn árið 2001 fyrir heimilisofbeldi og lýsti Janet því þá að hann hefði beitt bæði hana og börnin ofbeldi í 17 ár.
Oxman bar þetta undir Janet í aðalmeðferðinni gegn Jackson og þurfti hún þá að játa að hún hefði logið í skýrslugjöfinni. Oxman taldi þetta benda til þess að Janet væri svikahrappur. Hún hefði logið til að fá bætur frá JCPenny og hún hefði reynt að leika það eftir til að fá peninga frá Jackson.
Upplýsingarnar sem Oxman gróf upp notaði hann til að rústa trúverðugleika móður Gavins, Janet Arvizo. Hann benti á að Janet hafi sjálf fengið um 32 þúsund Bandaríkjadali af sáttagreiðslunni frá JCPenny, eða um 4 milljónir króna á núvirði. Janet hafði þó ekki upplýst yfirvöld um þessa greiðslu þegar hún sótti um félagslegar bætur. Þar með hefði hún gerst sek um bótasvik. Einn kviðdómenda, Melissa Herard, lýsir því í heimildarþáttunum að þessi afhjúpun hafi haft mikil áhrif á kviðdóminn.
„Í mínum huga var þetta bara farsi. Hún var bara að leitast eftir peningagreiðslu.“
Janet játaði sök í bótasvikamáli sem var höfðað gegn henni árið 2006 og samþykkti að greiða sekt til ríkisins fyrir að hafa ekki upplýst ríkið um bótagreiðsluna frá JCPenny og þar með fengið bætur umfram það sem hún átti rétt á.
Fyrrum starfsmaður tónlistarmannsins, Vincent Amen, segir að Jackson hafi geymt myndir af Arvizo-fjölskyldunni sem voru teknar á heimili hans, Neverland. Á mynd af bróður Gavins, Star, hafði drengurinn sjálfur skrifað skilaboð til tónlistarmannsins og kvittað undir þau: Sonur þinn, Blástursopið (e. blowhole).
Amen segir að þetta hafi verið eitt af gælunöfnunum sem Jackson gaf drengjunum. Star lýsti því sjálfur í réttarhöldunum 2005 að hann hafi verið kallaður Blástursopið en að Gavin hafi til dæmis verið kallaður Eplahaus og Kúkur.
Amen heldur því einnig fram í þáttunum að náinn vinur og aðstoðarmaður Jacksons – Frank Tyson sem var aðeins 5 ára þegar hann kynntist tónlistarmanninum – hafi beðið sig um að farga poka af barnaníðsefni þegar lögreglan gerði húsleit á Neverland-búgarðinum.
Á upptöku sem Amen tók má sjá að í umræddum poka var nektartímarit sem kallaðist Naturally en þar hafði einhver gert hring utan um myndbönd til að panta sem virtust sýna nakin börn. Þegar Amen spurði Tyson út í tímaritið og myndböndin sem búið var að merkja sagði Tyson að þetta hefði verið tímabil sem hann og Jackson gengu í gegnum.
Tyson neitaði að ræða við heimildarþættina en hann hefur ítrekað lýst því yfir að Jackson sé saklaus og að hann hafi aldrei séð nokkuð í fari tónlistarmannsins sem benti til þess að hann hefði verið haldinn barnagirnd.