fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fókus

Hollywood-elítan sögð hafa yfirgefið Harry og Meghan: „Þau halda aldrei að vandinn sé hjá þeim sjálfum“

Fókus
Laugardaginn 16. maí 2026 10:56

Harry og Meghan eru ekki í náðinni hjá fræga fólkinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörg af stærstu nöfnunum sem sátu í brúðkaupi Harry prins og Meghan Markle árið 2018 eru sögð hafa fjarlægst parið á undanförnum árum.

Þetta kemur fram í nýrri grein Alison Boshoff hjá Daily Mail þar sem samband Sussex-hjónanna við áhrifafólk í Hollywood og fyrrverandi vini þeirra er tekið til skoðunar.

Boshoff rifjar upp að meðal gesta í brúðkaupinu í Windsor hafi verið Oprah Winfrey, George og Amal Clooney, David og Victoria Beckham, Serena Williams, Idris Elba og fjölmargir leikarar úr þáttunum Suits.

Oprah sögð vilja halda fjarlægð

Samkvæmt heimildum greinarinnar hefur verulega fjarað undan mörgum þessara vináttusambanda frá því Harry og Meghan fluttu til Bandaríkjanna árið 2020 og sneru baki við hlutverki sínu innan bresku konungsfjölskyldunnar.

Sérstaklega er fjallað um samband þeirra við Opruh Winfrey, sem tók hið fræga viðtal við hjónin árið 2021 þar sem þau lýstu reynslu sinni innan konungsfjölskyldunnar. Heimildarmenn segja að Oprah hafi síðan haldið ákveðinni fjarlægð frá þeim og að sambandið sé langt frá því að vera eins náið og áður.

Í greininni er rætt við fjölmiðlakonuna og fyrrverandi Page Six-dálkahöfundinn Paulu Froelich sem segir að Oprah vilji þó ekki fjarlægjast þau of mikið.

„Ef eitthvað stórt gerist – skilnaður, dauðsfall eða drama – þá vill hún fá viðtalið,“ segir Froelich.

Fór illa í David Beckham

Einnig er haft eftir heimildarmanni að George og Amal Clooney vilji nú „ekkert með þau hafa“, þrátt fyrir að hafa áður boðið Harry og Meghan í heimsóknir og ferðalög á einkaþotu sinni.

Froelich tekur í sama streng og segir Clooney-hjónin aldrei hafa verið raunverulega náin Meghan.

„Þau eiga bókstaflega ekkert sameiginlegt með henni og standa með konungsfjölskyldunni,“ segir hún.

Þá er því haldið fram að David Beckham og Harry prins hafi einnig fjarlægst hvor annan á undanförnum árum.

Samkvæmt greininni hafi Meghan grunað Victoriu Beckham um að leka upplýsingum um hana til fjölmiðla, sem hafi farið afar illa í David Beckham. Jafnframt sé David sagður hafa haldið áfram að styrkja tengsl sín við aðra meðlimi konungsfjölskyldunnar, meðal annars Vilhjálm prins og Karl Bretakonung.

Boshoff segir að sumir fyrrverandi vinir telji Meghan og Harry leggja mikla áherslu á tengsl við frægt og áhrifamikið fólk, en eigi erfitt með að líta í eigin barm þegar samböndin fjara út.

„Þau halda aldrei að vandinn sé hjá þeim sjálfum,“ segir einn heimildarmaður greinarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Svona kemurðu í veg fyrir að barnið þitt verði narsissisti

Svona kemurðu í veg fyrir að barnið þitt verði narsissisti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þetta er það sem Íslendingar vilji að erlendir ferðamenn hætti að gera

Þetta er það sem Íslendingar vilji að erlendir ferðamenn hætti að gera