fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fókus

Hvetur alla til að lesa lýsingar leikkonunnar á heimilisofbeldinu sem hann beitti hana – „Ég var fullur“

Fókus
Miðvikudaginn 13. maí 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Hayden Panettiere er að gefa út æviminningar sínar. Þar opnar hún sig meðal annars um ofbeldissamband við fyrrverandi kærasta sinn Brian Hickerson. Þau voru sundur og saman á árunum 2018-2022 og ber leikkonan honum ekki góða söguna í bók sinni. Brian hefur þó fagnað útgáfu bókarinnar og vonar að saga leikkonunnar verði öðrum karlmönnum víti til varnaðar.

Árið 2021 var Brian dæmdur í 45 daga óskilorðsbundið fangelsi sem og til fjögurra ára á skilorði. Eins var honum gert að halda sig frá leikkonunni næstu fimm árin. Hann segir að það hafi verið erfitt að lesa þann kafla bókarinnar sem fjallar um hann en hann hvetur samt alla til að lesa hann.

„Heimilisofbeldið, ég held að það sé á blaðsíðu 272 í mínum kafla. Allir ættu að lesa þetta,“ segir hann í samtali við TMZ. Hann segir að það hafi þó verið eitt atvik sem hann hefði óskað þess að leikkonan hefði ekki fjallað um.

„Ég var fullur. Hayden var hinum megin í herberginu og ég var með símann í hendinni og sagði: Hey, Hayden. Ég gef þér 10 sekúndur til að hlaupa í burtu eins hratt og þú getur áður en ég kasta símanum í þig.“

Brian sýndi ekki mikla iðrun í samtali sínu við miðilinn heldur varði sig með því að vísa til þess að heimilisofbeldi sé algengt: „Allir gera þetta, þið vitið.“

Hann bætti þó við að frásögn leikkonunnar væri mikilvæg. Hann telur að ungmenni fái ekki næga fræðslu um ofbeldi í nánu sambandi.

„Mitt stærsta umkvörtunarefni hvað varðar ofbeldi í nánum samböndum er að okkur er ekki kennt um það nægilega snemma. Ég fékk aldrei kennslu um það hvað heimilisofbeldi er. Kannski ef ég hefði fengið slíka fræðslu þá hefði ég ekki gert það sem ég gerði. Maður veit aldrei.“

Brian segist hafa glímt við fíknisjúkdóm en sé núna kominn á beinu brautina. Hann sé meðal annars í 12 spora hóp með leikaranum Shia LaBeouf.

„Sá maður bjargaði lífi mínu. Ég er mjög kristinn maður og það er Shia líka og við elskum báðir Jesú.“

Ekki hefur Brian gefið upp vonina um að hann og leikkonan taki upp þráðinn að nýju og segist hann enn vonast til þess að þau gifti sig einn daginn.

„Hún er líklega ekki á sama máli. Og við yrðum líklegast ekki góð saman.“

Sjá einnig: Óttast um öryggi Hayden Panettiere – Kærastinn aftur handtekinn fyrir heimilisofbeldi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram: „Mér þykir ekki vænt um þig“

Vikan á Instagram: „Mér þykir ekki vænt um þig“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Patrekur Jaime veltir Bakgarðshlaupinu fyrir sér – „Skárra að vera í Kóngsbakka í Breiðholtinu að reykja krakk í tvo daga“

Patrekur Jaime veltir Bakgarðshlaupinu fyrir sér – „Skárra að vera í Kóngsbakka í Breiðholtinu að reykja krakk í tvo daga“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?
Fókus
Fyrir 6 dögum

Katrín Edda sagðist vera í sjokki: „Það er blóð í nærbuxunum“

Katrín Edda sagðist vera í sjokki: „Það er blóð í nærbuxunum“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð