

Lampenius er hluti af finnska Eurovision-atriðinu í ár ásamt söngvaranum Pete Parkkonen, en Finnland er samkvæmt veðbönkum talið sigurstranglegasta þjóðin í keppninni sem fram fer í Vínarborg. Úrslitakvöldið fer fram á laugardag, en eins og kunnugt er ákváðu Íslendingar að sitja heima í þetta skiptið.
Finnland hefur aðeins einu sinni áður unnið keppnina, þegar Lordi sigraði árið 2006 með laginu Hard Rock Hallelujah.
Í viðtali við breska blaðið Mirror segir Lampenius að mögulegur sigur myndi hafa djúpa persónulega þýðingu eftir langvarandi átök hennar við Nygård, sem hún hefur sakað um að hafa eyðilagt líf sitt og starfsferil um árabil.
„Þetta yrði mín hefnd, mín langatöng til Nygard,“ sagði hún. „Að vinna Eurovision væri hin fullkomna hefnd.“
Lampenius lýsti nýverið reynslu sinni á samfélagsmiðlum þar sem hún rifjaði upp að hún hefði árið 1997 skrifað undir samning við Nygård án þess að vita hvers konar maður hann væri. Hún kallaði hann síðar „djöfulinn“ og vísaði til tengsla hans við Jeffrey Epstein og Andrews Mountbatten-Windsor, áður Andrés prins.
Peter Nygård, sem er 84 ára og fæddur í Finnlandi, var árið 2023 sakfelldur fyrir fjögur kynferðisbrot gegn konum í Kanada. Dómarinn í málinu lýsti honum sem „kynferðislegu rándýri“ sem hefði nýtt auð sinn og áhrif til að misnota konur. Hann hefur einnig verið nefndur í tengslum við rannsóknir á Jeffrey Epstein og hefur hann raunar verið kallaður hinn „kanadíski Epstein“ eins og sjá má hér að neðan:
Deilur Lampenius og Nygards hófust opinberlega árið 1998 þegar hún varaði finnskar konur við honum í tímaritsgrein og sakaði hann um kynferðislega misnotkun og ósæmilega hegðun gagnvart konum og stúlkum. Í kjölfarið stefndi Nygard henni fyrir meiðyrði og krafðist milljóna punda í skaðabætur.
Vegna fjárskorts gat Lampenius ekki haldið bardaganum áfram og neyddist til að birta opinbera afsökunarbeiðni í finnsku dagblaði. Hún hefur síðar sagt að það hafi haft alvarleg áhrif á orðspor sitt í Finnlandi og að hún hafi þurft að lifa með afleiðingunum í tvo áratugi.
„Ég varð skúrkurinn. Ég var sú sem sagði konum að vara sig á honum,“ sagði hún nýlega í viðtali við sænska fjölmiðla.
Nygard er einnig sakaður í hópmálsókn í Bandaríkjunum þar sem tugir kvenna halda því fram að hann hafi um áratugaskeið stundað skipulagða kynferðislega misnotkun.
Veðbankar í Bretlandi telja Finnland nú líklegast til sigurs í Eurovision í ár en sjá má framlag Finna hér að neðan: