

Sigvaldi Kaldalóns, eða Svali eins og hann er betur þekktur, er genginn út. Sú heppna er Birna Baldursdóttir íþróttafræðingur. Svali var fjölmiðlamaður áður en hann sneri sér að ferðamennsku á Tenerife. Birna er einkaþjálfari hjá World Class og kennir við Verkmenntaskólann á Akureyri. Smartland greindi fyrst frá en parið hefur nú opinberað samband sitt á Instagram þar sem Birna deildi fallegri afmæliskveðju til síns heittelskaða.
„Innilega til hamingju með daginn elskan mín. Pant breyta í hjarta, aftur & aftur með þér næstu árin.“
Með færslunni deilir Birna myndum af parinu en af þeim má ráða að þau hafi verið saman í einhvern tíma.
View this post on Instagram