fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fókus

Selur íbúðina vegna heilsubrests og flytur í Fellabæ – „Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 18:08

Jódís Skúladóttir. Mynd: Gunnar Gunnarsson Austurfrétt.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jódís Skúladóttir, fyrrum þingmaður Vinstri grænna, hefur sett íbúð sína við Dalbraut á sölu. Ástæðan er langvarandi veikindi Jódísar og hyggst hún flytja í rólegra umhverfi á landsbyggðinni með tvö yngri börn sín. 

Íbúðin er 268,7 fm, þar af bílskúr 84 fm, á annarri hæð í húsi sem byggt var árið 1965. Ásett verð er 139,9 milljónir króna.

Jódís greinir frá sölunni og ástæðu hennar í færslu á Facebook. Þar segir hún að ár sé liðið frá því hún fór í veikindaleyfi, en veikindi hennar hafi þó hafist áratugum fyrr.

 „Ég var talsvert veik sem krakki og unglingur og greindist meðal annars með hsp/vasculitis sjálfsofnæmissjúkdóm sem barn. Ég á langa og flókna áfallasögu, eins og svo mörg, sem hefur kostað mikið álag fyrir öll kerfi líkamans. Ég hef unnið óhóflega mikið frá unglingsaldri og sjaldnast hlustað á viðvörunarorð vina, ættingja, lækna eða eigin samvisku þegar ég hef ofgert mér. Einkenni núverandi veikinda byrjuðu fyrir nokkrum árum, hafa verið mörg og ólík og stundum komið og farið þangað til að ég krassaði í fyrra.“

Segist Jódís hafa fengið greiningu fyrir páskana í ár eftir endalausar rannsóknir og hefur hún verið greind með ME (myalgic encephalomyelitis). Jódís segist byrjuð í lyfjameðferð en hafa þurft að hætta í endurhæfingu þar sem hún hafði slæm áhrif á veikindin þrátt fyrir einlæga ást hennar á Reykjalundi.

„Ég er ekki á leið á vinnumarkað að svo stöddu og framtíðarhorfur allar mjög óljósar. Mig langar að þakka starfsfólki Landbúnaðarháskólans (Guðmunda) sérstaklega fyrir stuðning, skilning og hlýju sem ég hef þurft á að halda til mótvægis við eigin fordóma, skömm og hörku í þessum aðstæðum“, segir Jódís.

Segist hún þurfa meiri og meiri aðstoð við daglegt líf undanfarið. Hlutir eins og að þrífa bílinn, versla inn, vera í miklum hávaða eða erli séu orðnar þannig áskoranir að hún einfaldlega ráði ekki við þær

„Í ljósi þessarar breyttu stöðu hef ég í samráði við fjölskylduna mína tekið ákvörðun um að flytja aftur heim í Fellabæ. Þar er lífið rólegra, minni hraði, minni hávaði og fjölskylda mín og vinir í nærumhverfinu. Þetta er ekki auðveld ákvörðun og ekki tekin af léttúð eða í fljótfærni. Ég á fjögur börn sem munu ekki öll fylgja mér.“

Eldri synir eru orðnir fullorðnir, annar í fullri vinnu og hinn að byrja nám við Háskóla Íslands í haust. Jódís segir hana og barnsmóður hennar vera að finna hvernig þær hagi best þörfum og vilja dóttur þeirra og yngsta sonar. Jódís er komin með samþykkt tilboð í hús í Fellabænum, dásamlegt að hennar sögn sem henti þeim vel.

„Nú er ég orðin svo alþýðleg og óspennandi að ég efast um að Marta smarta hafi á mér nokkurn áhuga. Því langar mig að auglýsa fallegu Dalbrautina mína bara sjálf. Ég verð að endingu að deila með ykkur hversu þakklát ég er mömmu minni. Hún hefur staðið með mér, trúað mér, hjálpað mér og skilið mig. Hún hefur verið með mér í læknaviðtölum og verið augu mín og eyru þegar ég hef ekki getað meir.

Þessi færsla er fyrir öll þau sem hafa upplifað skömm og sektarkennd vegna heilsubrests. Það valdeflir og styður að sjá aðrar manneskjur deila sögum sínum og það hjálpar okkur að hafna þeirri vitleysu að virði okkar felist í dugnaði, titlum og stöðu í samfélaginu.“

Íbúðin skiptist í forstofu, alrými með eldhúsi, setustofu og borðstofu, gengið er tvær tröppur niður í aukastofurými og baðherbergi. Fimm svefnherbergi, tvö þeirra eru inn af aukastofunni. Út frá aukastofunni er útgengt út á rými sem fylgir íbúðinni og hægt að gera svalir. Eina sem eftir er að gera þar er að setja handrið og eitthvað á gólfflötinn.

Einnig er þvottaherbergi í sameign. Geymsla er í hluta af bílskúr með sérhurð. Bílskúrnum hefur að öðru leyti verið breytt í séríbúð sem skiptist í forstofu, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi.

Tvö einkabílastæði fylgja íbúðinni á lóð fyrir framan bílskúrinn.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 1 viku

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna

Stefnir Kylie Jenner fyrir meint einelti og mismunun af hálfu starfsmanna
Fókus
Fyrir 1 viku

Fór til Íslands og fékk áfall yfir verðinu – Sjáðu myndbandið

Fór til Íslands og fékk áfall yfir verðinu – Sjáðu myndbandið
Fókus
Fyrir 1 viku

Vera hljóp allar göturnar í Reykjavík

Vera hljóp allar göturnar í Reykjavík
Fókus
Fyrir 1 viku

Anne Hathaway er fallegasta forsíðustúlkan

Anne Hathaway er fallegasta forsíðustúlkan