

Óhætt er að segja að þessi ákvörðun hafi borgað sig fjárhagslega fyrir hana því samkvæmt heimildum fjölmiðla vestanhafs er leikkonan þegar búin að þéna „sjö stafa tölu“ á einni viku – með öðrum orðum að minnsta kosti um 130 milljónir króna á núverandi gengi.
Shannon, sem er 52 ára, sló fyrst í gegn árið 1999 í kvikmyndinni American Pie, þar sem hún fór með hlutverk skiptinemans Nadiu.
Nú, rúmum aldarfjórðungi síðar, hefur hún snúið sér að beinni samskiptum við aðdáendur í gegnum OnlyFans, þar sem áskrifendur greiða fyrir aðgang að efni og persónulegum skilaboðum.
Samkvæmt heimildum People hefur einmitt stór hluti tekna hennar komið frá slíkum beinum samskiptum en einnig í gegnum þjórfé.
Í viðtölum hefur Elizabeth sagt að ákvörðunin um að fara á OnlyFans marki nýjan kafla í lífi hennar. Hún hafi lengi starfað í Hollywood þar sem aðrir stjórnuðu ímynd hennar og tækifærum, en með þessari leið geti hún sjálf ráðið framsetningu sinni og nálgast aðdáendur beint.
Hluti tekna hennar mun renna til góðgerðarmála í gegnum stofnun hennar, Shannon Elizabeth Foundation, sem beitir sér meðal annars í náttúru- og dýravernd.
Elizabeth hefur ekki komið fram í kvikmynd síðan árið 2024, en bendir á að miðlar á borð við OnlyFans marki breytta framtíð í afþreyingariðnaðinum, þar sem listamenn geta tengst áhorfendum milliliðalaust.
