fbpx
Þriðjudagur 21.apríl 2026
Fókus

Raðar Harry Potter myndum sínum í eftirlætisröð – Hver ætli honum finnist síst?

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 21. apríl 2026 16:30

Daniel Radcliffe. Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski leikarinn Daniel Radcliffe tókst á við hlutverk galdradrengsins Harry Potter í átta kvikmyndum árin 2000 til 2011, þegar hann var 11-22 ára gamall. Tökur á fyrstu myndinni hófust í september árið 2000, en Radcliffe er fæddur í júlí 1989. 

Radcliffe hefur verið spurður út í uppáhaldsmyndir hans í seríunni, meira en áratug eftir að síðasta myndin kom út. Í hlaðvarpi Josh Horowitz, Happy Sad Confused, viðurkenndi Radcliffe að hann hefði ekki horft á myndirnar í nokkurn tíma.

„Þegar ég var 18 ára, hryllti mig við að horfa á fyrri myndina,“ sagði Radcliffe, sem nú er 36 ára. „Nú finnst mér fyrstu myndirnar sætar en núna hryllir mig við að horfa á sjálfan mig þegar ég var 18 eða 19 ára.“

Hann hélt áfram: „En ég geri ráð fyrir að þessar dagsetningar muni bara halda áfram að breytast hvað varðar það sem mér finnst geðfellt af mínum eigin verkum.“

Horowitz bað hann um að raða myndunum og para þær saman eftir útgáfuröð.

Harry Potter og viskusteinninn (Sorcerer’s Stone) frá 2001 og Harry Potter og leyniklefinn (Chamber of Secrets) frá 2002

„Ég myndi velja Leyniklefann af þessum tveimur því ég elska Basiliskinn.“

Basiliskinn er risavaxinn höggormur sem bjó í Leyniklefanum. Höggormurinn átti að hafa lifað innan veggja Hogwarts í um 1.000 ár.

Fanginn frá Azkaban frá 2004 og Eldbikarinn frá 2005

Þegar Radcliffe var beðinn um að velja á milli Fangans frá Azkaban og Eldbikarsins gaf hann þeirri síðarnefndu atkvæði sitt. „Ég veit að allir vilja að ég segi Azkaban. Ég veit að það er þannig sem öllum öðrum líður, en ég elska það sem ég fékk að gera í fjórðu myndinni; hún var frábær. Svo ég segi Eldbikarinn.“

Fönixreglan frá 2007 og Blendingsprinsinn frá 2009

Varðandi Fönixregluna og Blóðprinsinn sagði leikarinn að sú síðarnefnda væri „líklega neðst í flokknum“ fyrir hann. „Vegna míns framlags, ekki myndin sjálf,“ bætti Radcliffe við um myndina frá 2007.

Dauðadjásnin frá 2010 og 2011

Þegar hann var spurður út í fyrstu og aðra myndina af Dauðadjásnunum, sem var skipt í tvo hluta vegna umfangs bókarinnar, hélt Radcliffe áfram og sagði að síðasta myndin væri „uppáhaldsmyndin af öllum“ hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Hreimi Erni gafst tækifæri til að svíkja félaga sína – „Ég veit ekki hvort þeir viti þetta”

Hreimi Erni gafst tækifæri til að svíkja félaga sína – „Ég veit ekki hvort þeir viti þetta”
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hasarmyndastjarna stígur óvænt skref

Hasarmyndastjarna stígur óvænt skref
Fókus
Fyrir 6 dögum

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“

Laufey sýnir á sér nýja hlið – „Lyktar eins og heima“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hneykslar aðdáendur Euphoria með myndskeiði

Hneykslar aðdáendur Euphoria með myndskeiði