fbpx
Sunnudagur 09.febrúar 2025
Fókus

Læknir segir Bonnie Blue hafa tekið svakalega áhættu – Margir efast um frásögn hennar

Fókus
Miðvikudaginn 15. janúar 2025 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti mikla athygli í gær þegar sagt var frá því að breska klámstjarnan Bonnie Blue hefði slegið heimsmet með því að stunda kynlíf með 1.057 karlmönnum á aðeins tólf klukkustundum.

Ef rétt reynist sló hin umdeilda klámleikkona heimsmet sem Lisa Sparks setti í Póllandi árið 2004 þegar hún sængaði hjá 919 karlmönnum á 24 klukkustundum.

Sjá einnig: Sló heimsmetið og svaf hjá 1057 karlmönnum á 12 tímum – Svona fór hún að því

Í umfjöllun Mail Online kemur fram að margir efist þó um þessa frásögn Bonnie, enda hefði hún þurft að sænga hjá 88 körlum á hverjum klukkutíma.

„Bonnie, segðu mér hvernig þetta er mögulegt á þessum tíma,“ sagði til dæmis einn netverjinn á meðan annar sagði: „Þetta er varla mögulegt á heilum degi.“

Hvað sem því líður segir kvensjúkdómalæknirinn Shree Datta að hafi Bonnie raunverulega tekist þetta vakni margar spurningar. Segir hún að Bonnie hafi tekið mikla áhættu ef litið er til ýmissa þátta og afleiðingar af svona uppátæki geti verið líkamlegar og ekki síður andlegar – sérstaklega þegar fram í sækir.

Bent er á það í umfjöllun The Sun að fyrrnefnd Lisa Sparks hafi lýst því fyrir skemmstu að uppátæki hennar árið 2004 sé eitt af því sem hún sér mest eftir í lífinu.

@bonnie_blue_xoxo United and Arsenal played 120 minutes. Bonnie Blue does 1057 men #bonnieblue #fyp ♬ original sound – Bonnie Blue

Shree segir að svona mikið álag á líkamann í langan tíma geti valdið ýmsum kvillum og óþægindum og aukið líkur á þvagfærasýkingum og kynsjúkdómum.

„Þar á meðal er aukin hætta á að óæskilegar breytingar verði í bakteríuflórunni í leggöngunum,“ segir hún og bætir við að í svona aðstæðum geti líkaminn verið berskjaldaður fyrir sýkingum á borð við klamydíu, lekanda, HIV, HPV og herpes,“ segir hún og bætir við að sumar þessara sýkinga sýni oft ekki mikil einkenni til að byrja með.

Þá nefnir hún andlega þáttinn og bendir á að einstaklingar sem taka þátt í svona gjörningum þurfi að vera reiðubúnir undir gagnrýni frá samborgurum sínum eða að vera litnir hornauga.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Bonnie Blue (@bonnie_blue_xox)

Bonnie útskýrði í myndbandi á TikTok hvernig þetta fór allt saman fram.

„Þetta byrjaði á hverri hópreiðinni (e. gang bang) á fætur annarri. Herbergið var gjörsamlega pakkað. Síðan var ég með fimm manna hópa,“ sagði hún. Að lokum svaf hún hjá einum í einu.

„Til dæmis horfði einn þeirra á meðan ég var með einhverjum öðrum og svo skiptust þeir á í hring,“ sagði hún.

Markmiðið þennan dag var að sofa hjá 1000 manns en hún svaf hjá 1057, en að meðaltali svaf hún hjá hverjum þeirra í minna en mínútu á mann.

„Þegar hún var komin upp í 1000 manns voru enn 57 manns í röðinni og Bonnie vildi sofa hjá þeim,“ sagði talsmaður Bonnie við The Sun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Móðir Biöncu Censori rýfur þögnina um skandal dóttur sinnar

Móðir Biöncu Censori rýfur þögnina um skandal dóttur sinnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tom Brady birtir óræð skilaboð um ást eftir að fyrrverandi eignaðist barn með öðrum manni

Tom Brady birtir óræð skilaboð um ást eftir að fyrrverandi eignaðist barn með öðrum manni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kærasta Liam Payne brotnar niður og útskýrir af hverju hún fór heim nokkrum dögum áður en hann lést

Kærasta Liam Payne brotnar niður og útskýrir af hverju hún fór heim nokkrum dögum áður en hann lést
Fókus
Fyrir 3 dögum

Úlfúðin eykst – Segir Lively hafa hækkað framleiðslukostnað með tugmilljóna fatakaupum

Úlfúðin eykst – Segir Lively hafa hækkað framleiðslukostnað með tugmilljóna fatakaupum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Draumey Aradóttir með nýja ljóðabók – Útgáfuteiti á Norðurbakkanum

Draumey Aradóttir með nýja ljóðabók – Útgáfuteiti á Norðurbakkanum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vísa ásökunum um að Kanye sé að ráðskast með eiginkonu sína á bug – „Bianca er ekki þvinguð til neins“

Vísa ásökunum um að Kanye sé að ráðskast með eiginkonu sína á bug – „Bianca er ekki þvinguð til neins“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ævintýralega dramað heldur áfram – Dómari slær á fingur leikaranna og biður þau að hætta að reka málið fyrir fjölmiðlum

Ævintýralega dramað heldur áfram – Dómari slær á fingur leikaranna og biður þau að hætta að reka málið fyrir fjölmiðlum