fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fókus

Klámmyndafyrirtæki býður Ammirati stóran samning – „Ég myndi verðlauna hann fyrir það sem allir sáu“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 6. ágúst 2024 15:30

Hæg endursýning sýnir hvernig grjúpánið felldi ránna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stangarstökkvaranum Anthony Ammirati hefur verið boðinn samningur við klámmyndafyrirtæki. Eins og frægt er orðið kom getnaðarlimur hans í veg fyrir að hann kæmist yfir ránna á ólympíuleikunum.

TMZ greinir frá þessu.

Það er klámmyndafyrirtækið CamSoda sem hefur boðið hinum franska stangarstökkvara samninginn. Upphæðin er 250 þúsund dollarar, eða tæplega 35 milljónir króna. CamSoda býður notendum sínum upp á að fylgjast með fyrirsætum í beinu streymi.

Ammirati, sem er 21 árs gamall og fyrrverandi unglinga heims- og Evrópumeistari, reyndi við 5,7 metra í stangarstökkskeppninni á laugardag. Eins og sést í hægri endursýningu á stökkinu var það getnaðarlimur hans sem rakst í ránna með þeim afleiðingum af hún féll og Ammirati náði ekki takmarkinu.

Hefur myndbandið farið eins og eldur í sinu um netheima og margir hent gaman að atvikinu, flestir góðlátlegu.

Ammirati hafnaði í tólfta sæti og sagðist hafa verið í mjög jákvæður fyrir mótinu. Hann hafi verið tiltölulega óþekktur og hafi keppt án nokkurs stress.

„Ég myndi verðlauna hann fyrir það sem allir sáu, hæfileikana neðan beltis,“ sagði Daryn Parker, varaforseti CamSoda. „Sem aðdáandi klofmiðaðra athafna myndi ég bjóða honum 250 þúsund dollara fyrir 60 mínútna vefmyndavélasýningar þar sem hann sýnir stellið, án rárinnar vitaskuld.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 5 dögum

Gerðu plötu á einni helgi

Gerðu plötu á einni helgi
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“

„Alltaf rödd innra með mér sem sagði að ég ætti ekki að vera að gera þetta“
Fókus
Fyrir 1 viku

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu

Ari Edwald setur þakíbúðina á sölu
Fókus
Fyrir 1 viku

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“

Ingó veðurguð: „Ég er eiginlega kominn með algjörlega nóg af þessu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Bjartur: „Það var mikið áfall að vera tekinn frá mömmu“

Bjartur: „Það var mikið áfall að vera tekinn frá mömmu“
Fókus
Fyrir 1 viku

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“

Auglýsir fötin af sér í heimsóknum til krabbameinsgreindra barna og eftirlifenda hatursárásar á Bondi Beach – „Drottningin hlýtur að vera að velta sér í gröfinni“
Fókus
Fyrir 1 viku

Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands

Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands
Fókus
Fyrir 1 viku

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar

Þessar bækur eru tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar