Kacey greindi frá lögbrotinu í spjallþætti Jimmy Fallon í gær. Hana langaði svo að sjá norðurljósin á meðan hún var á Ísland. Þau Bobby ákváðu að fara á vit ævintýranna og keyrðu í nokkra klukkutíma í von um að sjá þau.
Þau sáu smá norðurljós, ekki mikið en urðu að láta það nægja þar sem langur dagur var fram undan næsta dag og þau þurftu að drífa sig til baka á hótelið. Þau keyrðu hratt til baka og allt gekk vel, eða svo héldu þau.
„Tveimur vikum seinna fékk Bobby bréf og við greinilega brutum lögin á Íslandi. Við fengum hraðasekt,“ sagði hún við Jimmy Fallon við hlátraköll áhorfenda.
Kacey sagði að sektin hafi aðeins verið um 1400 krónur, eða tíu dollarar.
„Þetta var þess virði, augljóslega. En það sem var svo fyndið var að í bréfinu var mynd af okkur, ég tók ekki eftir neinu tæki þegar við vorum að keyra.“
Hún sýndi Fallon myndina.
Kántrístjarnan segir frá þessi betur í myndbandinu hér að neðan.
@fallontonight @kaceymusgraves accidentally broke the law while she was in Iceland for Deeper Well 👀 #FallonTonight #TonightShow #KaceyMusgraves #DeeperWell ♬ original sound – FallonTonight
Kacey er vel þekkt tónlistarkona og hefur hún unnið til sex Grammy-verðlauna á ferli sínum þrátt fyrir að vera aðeins 35 ára gömul. Fylgjendur hennar á Instagram eru 2,3 milljónir talsins.
Hún birti skemmtilegt myndband af sér í Bláa lóninu þegar hún var stödd á Íslandi sem vakti mikla athygli.
Sjá einnig: Ferðalag stjörnunnar til Íslands var ekki eins og hún hafði ímyndað sér – Sjáðu myndbandið