

Hollywood-stjarnan Jason Momoa hefur verið sakaður um að sýna breksu sjónvarpsstjörnunni Nigella Lawson dónaskap. Lawson er þekktust fyrir matreiðsluþætti sína.
Þau voru bæði gestir í spjallþættinum The One Show á BBC í gær. Þriðji gesturinn var norður-írski leikarinn James Nesbitt.
Gestirnir sátu allir saman í sófa á meðan stjórnandinn spjallaði við þau, eins og venjan er í breskum spjallþáttum. Það þótti áberandi að Momoa sneri lengst af baki í Lawson á meðan þættinum stóð. Áhorfendur gerðu strax athugasemdir á samfélagsmiðlum við háttalag stjörnunnar.
Þetta kemur fram í umfjöllun Daily Mail.
Meðal ummmæla sem féllu á samfélagsmiðlum eru:
„Mjög dónaleg líkamstjáning.“
„Þetta er mikil fáviska sem Jason Momoa er að sýna, sérstaklega þegar James Nesbitt er að tala, að snúa bakinu í Nigella Lawson.
„Hvað gerði Nigella til að reita Jason Momoa til reiði?“