fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
433Sport

Goðsögnin leggur skóna á hilluna

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 15. maí 2026 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Seamus Coleman hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir glæsilegan feril hjá Everton sem spannar meira en sautján ár.

Írski bakvörðurinn kom til Everton frá Sligo Rovers árið 2009 fyrir aðeins 60 þúsund pund og varð síðar einn ástsælasti leikmaður félagsins. Coleman lék alls 372 leiki í ensku úrvalsdeildinni fyrir Everton, þar af 140 sem fyrirliði liðsins.

Ef hann kemur við sögu í síðasta heimaleik sínum gegn Sunderland um helgina verður það 434. leikur hans fyrir félagið í öllum keppnum. Þá fer hann upp í tíunda sæti yfir leikjahæstu menn í sögu Everton.

Coleman staðfesti ákvörðun sína í viðtali á heimasíðu félagsins og sagði að nú tæki við tími til að hugsa um framtíðina með fjölskyldu sinni.

Hann útilokaði þó ekki að halda áfram störfum hjá Everton utan vallar.

„Félagið hefur verið frábært við mig og boðið mér tækifæri til að vera áfram hjá Everton,“ sagði Coleman.

Hinn 37 ára gamli Íri skilur eftir sig stór spor hjá Everton eftir langan og farsælan feril á Merseyside.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Staðfest hvaða stórstjörnur koma fram í hálfleik á úrslitaleik HM

Staðfest hvaða stórstjörnur koma fram í hálfleik á úrslitaleik HM
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Fær dóm fyrir að hafa ekki greitt meðlag í lengri tíma

Fær dóm fyrir að hafa ekki greitt meðlag í lengri tíma
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Chelsea í samstarf við Jay-Z

Chelsea í samstarf við Jay-Z
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Líkur á að Southampton verði dæmt úr leik og úrslitaleikurinn færður

Líkur á að Southampton verði dæmt úr leik og úrslitaleikurinn færður
433Sport
Í gær

Lýsa stórfurðulegri hegðun – Heimtaði að fá að vita hversu oft þau stunduðu kynlíf

Lýsa stórfurðulegri hegðun – Heimtaði að fá að vita hversu oft þau stunduðu kynlíf
433Sport
Í gær

United komið af stað í viðræður við tvo miðjumenn

United komið af stað í viðræður við tvo miðjumenn