fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fókus

Júlí Heiðar um lagið alræmda – „Framhaldsskólagrín sem fór úr böndunum“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 12. júní 2023 12:54

Júlí Heiðar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngvarinn Júlí Heiðar gaf út yfirlýsingu á Instagram í gær vegna lags sem hann gaf út árið 2009, „Blautt dansgólf“.

Júlí Heiðar var flytjandi lagsins en samdi hvorki lagið né textann.

Lagið olli talsverðu fjaðrafoki vegna ögrandi og grófs texta. Tónlistarmyndbandið var einnig mjög umdeilt en það var tekið út af YouTube eftir tæpan sólarhring.

Þá var „Blautt dansgólf“ bannað á mörgum útvarpsstöðvum.

Blöskraði þegar hann hlustaði á lagið

Fjórtán ár eru liðin frá því að lagið kom út og sér söngvarinn mikið eftir útgáfu þess. Hann segist skilja umtalið sem lagið vakti, enda blöskraði honum sjálfum þegar hann hlustaði á lagið um daginn, í fyrsta skipti í mörg ár.

Yfirlýsingu hans má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Blautt dansgólf var framhaldsskólagrín sem fór úr böndunum og kom út árið 2009. Enn þann dag í dag eða 14 árum síðar koma komment tengd laginu á efni sem ég gef út eða set á samfélagsmiðla.

Ég skil svo sem umtalið, ég hlustaði á lagið um daginn í fyrsta skipti í mörg ár og blöskraði, enda textinn hreint út sagt ógeðslegur.

Þegar ég var 18 ára fannst mér þetta frekar fyndið og athyglin var spennandi. Í dag hefði ég gert þetta öðruvísi en við hlaupum víst ekki frá fortíðinni.

Ætli ég losni einhvern tíma við þetta?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“

„Hvað borgar almenningur fyrir það að Steinunn Ólína fari í starfshæfismat?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þingmaður Samfylkingarinnar uppskar gull í skemmtiskokki – Sigraði barnunga keppendur

Þingmaður Samfylkingarinnar uppskar gull í skemmtiskokki – Sigraði barnunga keppendur
Fókus
Fyrir 6 dögum

Prjónaðu besta vin Línu langsokks

Prjónaðu besta vin Línu langsokks
Fókus
Fyrir 6 dögum

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“

Dóra stígur fram: „Ég hefði ekki getað gert neitt til að koma í veg fyrir það sem gerðist“