„Það er að eiga sér stað bylting á þessum kynferðis og tilfinningavettvangi,“ segir Dr. Berglind Rós Magnúsdóttir um ástandið á ástarlífsmarkaðnum í þættinum Undir yfirborðið í kvöld þar sem hún kynnir niðurstöður nýrrar rannsóknar á tilhugalífi fráskildra framakvenna.
Þar kemur meðal annars fram að konur eru að læra að vernda ástarkraftinn sinn og njóta erótísks unaðar í tilhugalífinu án þess að verða fyrir ástararðráni.
Stefnumótaforritið Tinder spilar stóra rullu á ástarflífsmarkaðnum og nú sækjast konur gjarnan eftir erlendum vonbiðlum sem uppfylla betur viðmið um ástarverðuga og spennandi karlmenn.
„Konur eru að taka sig saman og segja frá mönnum sem haga sér illa og við þekkjum FB-síðuna „Stöndum saman.“ Þetta er ekki hægt erlendis: „Passið ykkur á honum Ragnari eða Jónasi““, segir Berglind Rós í þættinum sem verður sýndur á Hringbraut í kvöld. Hún fjallar um nýja leikreglur á ástarlífsmarkaðnum.
Dr. Berglind Rós Magnúsdóttir er leiðandi á þessu sviði og er formaður Hins íslenska ástarrannsóknarfélags. Í þættinum ræða Ásdís og Berglind saman um ástarrannsóknir, ástarkraftinn, tilfinningaauðmagn, kynósandi kapital, ástararðrán leikreglur tilhugalífsins, um Tinder, og hjásvæfla.
Horfðu á Undir yfirborðið á Hringbraut í kvöld kl. 19:30