fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fókus

Pétur lamaðist eftir 12 metra fall – Leiðir fólk í gegnum reynslu með hugvíkkandi efnum

Bjarki Sigurðsson
Föstudaginn 2. apríl 2021 16:33

Pétur Guðmundsson Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pétur Kristján Guðmundsson, kvikmyndagerðarmaður, er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Pétur, sem var mikill útivistargarpur, lamaðist í slysi í Austurríki fyrir 10 árum. Eftir margra ára sjálfsvinnu er Pétur nú kominn á stað þar sem hann vinnur við að hjálpa fólki öðru fólki. Eitt af því sem hefur hjálpað honum hve mest er notkun á hugvíkkandi efnum, einkum psilociben, virka efninu í sveppum.

„Þessi efni hafa verið notuð í þúsundir ára víða um heim. Það sem gerðist hjá mér eftir að ég byrjaði að vinna með þessi efni fór ég að víkka út veruleikann og sjá hlutina með öðrum augum. Það hjálpaði mér að byrja að eiga við raunveruleikann og sætta mig við stöðuna. Ég áttaði mig á því að ég gæti ekki komist framhjá mænuskaðanum sem ég hafði orðið fyrir og neyddist til að horfast í augu við veruleikann í stað þess að flýja hann. Ég endaði á að flytja í sumarbústað á afskekktum stað og vann með þessi efni heilan vetur,“ segir Pétur.

Hann segir þessi efni geta auðveldlega verið hættuleg séu þau notuð í röngum aðstæðum. Ef þú veist ekki hvað þú ert að gera geti það gerst mjög hratt að efnin hafi skaðleg áhrif. Því er mjög mikilvægt að gera þetta í réttum aðstæðum undir handleiðslu. Hann viðurkennir þó að það sé ólöglegt að vinna við þetta.

„Það er óþægilegt að vinna með þetta og vita að það er ólöglegt. En ég er kominn út úr skápnum með þetta og finnst ég bara verða að gera það. Það er komið svo gríðarlegt magn af rannsóknum sem staðfesta árangurinn sem þessi efni hafa varðandi þunglyndi, áföll, kvíða og fleira. Fólk sem er í lögreglunni veit þetta og það er ekkert verið að handtaka mig. Ég hef hingað til verið látinn í friði af lögreglunni. Þetta er á gráu svæði, af því að það er mjög erfitt að banna eitthvað sem vex út á grasfleti“ segir Pétur.

Í þættinum lýsir Pétur aðdraganda slyssins. Hann fór með fólki í strætó upp fjall sem er við borgina Innsbruk á nýársnótt til að horfa á flugeldana ofan frá. Þegar tími var kominn til að fara til baka var strætisvagninn fullur af fólki og Pétur fékk vin sinn til að labba með sér niður í staðinn.

„Hann reyndi að stoppa mig, af því að við vissum ekki hversu löng leiðin væri niður eða hversu bratt það væri, en ég hlustaði ekki. Maður var búinn að vera þarna á snjóbretti í mörg ár og það gerðist aldrei neitt, þannig að manni leið eins og maður væri óbrjótanlegur. Það var frost og mið nótt og lá snjór yfir öllu. Við löbbuðum inn í skóg og ég var á undan honum og ég hoppaði í átt að tré sem var þarna, en missti af því og byrjaði að rúlla stjórnlaust niður brekkuna. En ég var vanur því á snjóbrettinu, þannig að ég man að ég hugsaði á meðan ég rúllaði niður brekkuna að þetta væri nú ekkert stórmál, en svo var 12 metra klettur þarna fyrir neðan.“

Pétur skaust fram af klettinum og lenti á skógarvegi þar fyrir neðan. Þegar hann ætla að standa upp og halda áfram var eins og búið væri að slíta líkamann í sundur og lappirnar virkuðu ekki. Hann lá þarna á veginum í fjóra klukkutíma.

„Líkamshitinn var kominn niður í 31 gráðu og ef ég hefði verið þarna í klukkutíma í viðbót hefði ég frosið til dauða. Ég var líka með blæðingu inn á heila og samfallin lungu. Síðan man ég eftir að ég var sprautaður niður og ég opnaði svo augun í herbergi með kremlitaða veggi og læknirinn kemur inn og segir mér að hann hafi framkvæmt á mér aðgerð sem hafi tekið átta klukkutíma og að ég muni aldrei ganga aftur. Hann sagði þetta bara við mig kalt og beint. En jafnvel þó að læknirinn hafi sagt þetta við mig neitaði ég bara að trúa þessu. Ég var handviss um að ég myndi ganga aftur. Þetta augnablik var ekki nærri jafnerfitt eins og þegar ég áttaði mig á því tveimur árum síðar að ég væri búinn að vera í afneitun allan þennan tíma.“

Stóra áfallið hjá Pétri var ekki slysið sjálft, heldur þegar hann áttaði sig á því 2-3 árum síðar að hann hefði verið í harkalegri afneitun.

„Ég gjörsamlega hrundi og var fullkomlega „dysfunctional“ í heilt ár eftir að ég áttaði mig á stöðunni. Ég sökk í eins djúpt þunglyndi og það gerist og var farinn að skoða „Suicidal-Clinic“ í Sviss, sem eru stofnanir þar sem fólk getur ákveðið sjálft að enda líf sitt af því að þjáningin er orðin of mikil.“

Í þættinum ræða Sölvi og Pétur um slysið, listina við að gefast ekki upp, hugvíkkandi efni og margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslendingar fljúga snemma úr hreiðrinu – Goðsögnin um ítölsku mömmustrákana er sönn

Íslendingar fljúga snemma úr hreiðrinu – Goðsögnin um ítölsku mömmustrákana er sönn
Fókus
Í gær

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari tekinn á teppið fyrir framkomu sína – Birti sjálf myndbandið sem kom upp um hana

Einkaþjálfari tekinn á teppið fyrir framkomu sína – Birti sjálf myndbandið sem kom upp um hana
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Það var mjög erfitt að horfa upp á ungan mann í dauðastríði“

„Það var mjög erfitt að horfa upp á ungan mann í dauðastríði“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Una Torfa með nýtt lag á miðnætti

Una Torfa með nýtt lag á miðnætti
Fókus
Fyrir 4 dögum

Læknir segir að þú getir sagt til um typpastærð karlmanns með því að horfa framan í hann

Læknir segir að þú getir sagt til um typpastærð karlmanns með því að horfa framan í hann
Fókus
Fyrir 5 dögum

Barkley skaut fast á sólmyrkvaáhorfendur – „Ég ætla ekki að sitja úti eins og hálfviti og bíða eftir myrkrinu“

Barkley skaut fast á sólmyrkvaáhorfendur – „Ég ætla ekki að sitja úti eins og hálfviti og bíða eftir myrkrinu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bregst við orðrómi um skilnað

Bregst við orðrómi um skilnað