Margir óttast fátt meira en að maki þeirra sé þeim ótrúr og oft er ýmsum ráðum beitt til að leiða sannleikann í ljós. Oft getur það að gruna makann um græsku get ósköp venjulegt fólk að útsjónarsömum spæjurum.
Þetta raungerðist í tilfelli konu nokkurrar sem deildi sögu sinni á TikTok.
„Þegar hann deildi myndbandi frá bát og ég sá ljóst hár svo ég fór í gegnum alla fylgjendur hans sem eru með ljóst hár, gerði gerviaðgang á Instagram, náði mér í 200 fylgjendur, bað um að fá að fylgja henni og náði að tengja þennan sama bát sem þau voru á við mynd sem hún deildi fyrir tveimur árum“
@halleeebthe amount of tiktoks i could make to this sound is shameful … women for fbi
Myndbandið er þegar komið með hátt í tvær milljónir áhrifa og yfir 300 þúsund „læk“ hátt í tvö þúsund athugasemdir og rúmlega þrjú þúsund deilingar.
Í athugasemdum furða margir sig á því hvers vegna þessi kona sé ekki rannsóknarlögreglumaður, því hún hafi greinilega hæfileika til að rannsaka mál ofan í kjölinn.
„Ef við myndum vinna saman er ég nokkuð viss um að við gætum upp á okkar einsdæmi tortímt karlkyninu eins og það leggur sig.“
„FBI ættu að ráða þig“
„Ég tengi! Hér mér var það pínulítið horn af bleiku Thirty One veski á sjálfu sem hann tík á hótelherbergi til að bjóða mér góða nótt þegar hann var í vinnuferðalagi.“
Myndbandið varð svo vinsæl að konan, Halle, ákvað að fylgja því eftir að greina fylgjendum frá því hvernig hún hefndi sín á kærastanum fyrir framhjáhaldið og lygarnar.
„Til að hefna mín á mínum fyrrverandi setti ég á tók ég af mér speglamynd og notaði myndvinnsluforrit til að bæta karlmanni inn á myndina. Svo setti ég myndina í möppu sem við deilum aðgangi að, og leyfði henni að vera þar nægilega lengi til að hann fengi tilkynningu um að það væri komin ný mynd – svo eyddi ég henni og beið eftir að han sendi mér skilaboð.“
@halleeeb Reply to @realtormarlene ♬ Insane – Summer Walker